Biblíulestur – 28. júní – Okv 24.11–22
Bjargaðu þeim sem leiddir eru til lífláts,
þeim sem eru dæmdir til aftöku.
Ef þú segir: „Vér vissum það ekki,“
mun þá ekki sá sem gaumgæfir hjörtun verða þess var
og sá sem vakir yfir lífi þínu vita það?
Hann mun gjalda hverjum eftir verkum hans.
Gæddu þér á hunangi, sonur minn, því að það er gott
og hunangsdroparnir eru sætir í munni.
Vit að þetta er sál þinni speki.
Finnir þú hana áttu þér framtíð
og von þín mun ekki bregðast.
Rangláti maður, sit ekki um bústað hins réttláta
og spilltu ekki heimkynnum hans
því að sjö sinnum fellur hinn réttláti og stendur upp aftur
en hinir ranglátu hrasa og tortímast.
Gleðstu ekki yfir falli óvinar þíns
og hjarta þitt fagni ekki þótt hann hrasi
svo að Drottinn sjái það ekki og honum mislíki
og hann snúi reiði sinni frá honum.
Reiðstu ekki vegna illgjörðamanna,
láttu ekki rangláta angra þig
því að vondur maður á sér enga framtíð,
á lampa ranglátra slokknar.
Sonur minn, óttastu Drottin og konunginn,
eigðu ekki samneyti við uppreisnarseggi
því að ógæfa þeirra ríður yfir þegar minnst varir
og hver getur séð fyrir ófarir þeirra?
Biblíulestur 23. desember – Jóh 3.22-36
Hann á að vaxa 22 Eftir þetta fóru Jesús og lærisveinar hans út í Júdeuhérað. Þar dvaldist hann með þeim og skírði. 23Jóhannes var líka að skíra í Aínon nálægt [...]
Biblíulestur 22. desember – Slm 58.1-12
1 Til söngstjórans. Lag: Spill eigi. Davíðsmiktam. 2Þér voldugu, talið þér í sannleika það sem rétt er? Dæmið þér mennina af sanngirni? 3Nei, allir aðhafist þér ranglæti á jörðu, hendur [...]
Biblíulestur 21. desember – 2Mós 4.1-17
1 Móse svaraði og sagði: „En ef þeir trúa mér ekki og hlusta ekki á mig, heldur segja: Drottinn hefur ekki birst þér.“ 2 Þá sagði Drottinn: „Hvað ertu með [...]
Biblíulestur 20. desember – 2Mós 3.7-22
7 Þá sagði Drottinn: „Ég hef séð eymd þjóðar minnar í Egyptalandi og heyrt kvein hennar undan þeim sem þrælka hana. Já, ég þekki þjáningu hennar. 8 Ég er kominn [...]
Biblíulestur 19. desember – 2Mós 2.16-3.6
2. kafli 16 Presturinn í Midían átti sjö dætur. Þær komu til að sækja vatn og fylla þrærnar til að brynna fé föður síns. 17 Þá komu nokkrir hjarðmenn og [...]
Biblíulestur 18. desember – 2Mós 2.1-15
Fæðing Móse og æska 1 Maður nokkur af ætt Leví fór og tók sér eiginkonu af sömu ætt. 2 Konan varð þunguð og eignaðist son. Þegar hún sá hve efnilegur [...]