Samson og Dalíla

4 Eftir þetta bar svo við að Samson felldi ástarhug til konu einnar í Sórekdal. Hún hét Dalíla. 5 Höfðingjar Filistea komu til hennar og sögðu við hana: „Ginntu hann og komstu að því í hverju hinir miklu kraftar hans eru fólgnir og með hvaða ráðum við getum yfirbugað hann svo að við náum að binda hann og þjá. Við munum hver um sig gefa þér þúsund sikla silfurs og hundraði betur.“ 6 Dalíla sagði þá við Samson: „Segðu mér í hverju hinir miklu kraftar þínir eru fólgnir og með hverju þú verður bundinn svo að menn fái ráðið við þig.“ 7Samson svaraði henni: „Ef menn binda mig með sjö nýjum þvengjum, sem ekki eru enn orðnir þurrir, verð ég linur og eins og hver annar maður.“ 8 Þá færðu höfðingjar Filistea henni sjö nýja þvengi sem ekki voru þornaðir og hún batt hann með þeim. 9 En mennina, sem um hann sátu, hafði hún hjá sér í svefnhúsinu. Því næst sagði hún við hann: „Filistear hafi þig, Samson.“ Þá sleit hann sundur strengina eins og hörþráður hrekkur sundur þegar eldur er nærri og ekki varð komist fyrir afl hans.
10 Þá sagði Dalíla við Samson: „Þú hefur blekkt mig og logið að mér. Segðu mér nú með hverju þú verður bundinn.“ 11 Hann svaraði: „Ef menn binda mig með nýjum reipum, sem ekki hafa verið höfð til neinnar vinnu, verð ég linur og eins og hver annar maður.“ 12 Þá tók Dalíla ný reipi, batt hann með þeim og sagði við hann: „Filistear hafi þig, Samson.“ Og mennirnir, sem um hann sátu, voru í svefnhúsinu. En hann sleit þau af armleggjum sér sem þræðir væru.
13 Og Dalíla sagði við Samson: „Enn hefurðu blekkt mig og logið að mér. Segðu mér með hverju þú verður bundinn.“ Og hann sagði við hana: „Ef þú vefur hárlokkana sjö á höfði mér saman við uppistöðuna í vef og festir með nagla verð ég linur og eins og hver annar maður.“ 14 Meðan hann svaf tók Dalíla hárlokkana sjö á höfði hans, óf þá saman við uppistöðuna og festi þá við vegginn með nagla og sagði við hann: „Filistear hafi þig, Samson.“ Þá vaknaði hann af svefninum og kippti út vefjarnaglanum og uppistöðunni.[
15 Þá sagði hún við hann: „Hvernig getur þú sagt: Ég elska þig, ef þú ert ekki einlægur við mig? Þrisvar hefur þú nú blekkt mig og ekki sagt mér í hverju hið mikla afl þitt er fólgið.“ 16 Hún nauðaði í honum alla daga með orðum sínum og lagði svo fast að honum að hann varð dauðleiður á því 17 og sagði henni allan hug sinn og mælti: „Aldrei hefur rakhnífur komið á höfuð mitt því að ég var helgaður Guði frá móðurlífi. Væri hár mitt skorið hyrfu kraftar mínir og ég yrði linur og eins og allir aðrir menn.“
18 Þegar Dalíla sá að hann hafði trúað henni fyrir öllu sendi hún eftir höfðingjum Filistea og lét segja þeim: „Nú skuluð þið koma því að hann hefur trúað mér fyrir öllu.“ Þá fóru höfðingjar Filistea til hennar og höfðu silfrið með sér. 19 Hún svæfði hann í kjöltu sinni, kallaði á mann og lét hann skera hárlokkana sjö af höfði hans. Þannig veikti hún hann og afl hans var horfið frá honum. 20 Þá sagði hún: „Filistear hafi þig, Samson.“ Hann vaknaði af svefninum og hugsaði: „Ég slepp í þetta sinn sem hin fyrri og slít mig lausan.“ En hann vissi ekki að Drottinn var vikinn frá honum. 21 Filistear tóku hann höndum, stungu úr honum augun og fóru með hann niður til Gasa. Þeir færðu hann í eirfjötra og varð hann að draga kvörn í dýflissunni. 22 En höfuðhár hans tók aftur að vaxa eftir að það hafði verið skorið.