Biblíulestur – 21. júlí – 5Mós 6.1–15
Þetta eru fyrirmælin, lögin og ákvæðin, sem Drottinn, Guð okkar, hefur falið mér að kenna ykkur að halda í landinu sem þið eruð að fara yfir til og slá eign ykkar á svo að þú, börn þín og barnabörn virðið Drottin, Guð ykkar, alla ævidaga þína með því að halda öll lög hans og fyrirmæli sem ég set ykkur til þess að þú verðir langlífur. Hlýð því á þau, Ísrael, og gættu þess að halda þau svo að þér vegni vel og þér fjölgi stórum í landinu sem flýtur í mjólk og hunangi eins og Drottinn, Guð þinn, hét þér.
Heyr, Ísrael. Drottinn, Guð vor, Drottinn er einn. Þú skalt elska Drottin, Guð þinn, af öllu hjarta þínu, allri sálu þinni og af öllum mætti þínum.
Þessi orð, sem ég boða þér í dag, skulu vera þér hugföst. Þú skalt brýna þau fyrir börnum þínum. Þú skalt hafa þau yfir þegar þú situr heima og þegar þú ert á faraldsfæti, þegar þú leggst til svefns og þegar þú ferð á fætur. Þú skalt binda þau sem tákn á hönd þína og hafa þau sem merki milli augna þinna. Þú skalt skrifa þau á dyrastafi húss þíns og borgarhlið þín.
Drottinn, Guð þinn, mun leiða þig inn í landið sem hann sór feðrum þínum, Abraham, Ísak og Jakobi, að gefa þér, land með stórum og fögrum borgum sem þú byggðir ekki, með húsum fullum af alls kyns góðum hlutum sem þú safnaðir ekki, úthöggnum brunnum sem þú hjóst ekki, víngörðum og ólífutrjám sem þú gróðursettir ekki. Þegar þú matast og verður mettur, gæt þess þá að þú gleymir ekki Drottni sem leiddi þig út úr Egyptalandi, úr þrælahúsinu. Þú skalt óttast Drottin, Guð þinn, þú skalt þjóna honum og sverja við nafn hans.
Þið skuluð ekki fylgja öðrum guðum, ekki neinum af guðum þjóðanna sem búa umhverfis ykkur því að Drottinn, Guð þinn, sem er með þér, hann er vandlátur Guð. Reiði Drottins, Guðs þíns, gæti blossað upp gegn þér og hann kynni að afmá þig af yfirborði jarðar.
Biblíulestur 15. maí – Heb 13.1-16
Lofgjörðarfórn fyrir Guð 1 Bróðurkærleikurinn haldist. 2 Gleymið ekki gestrisninni því að vegna hennar hafa sumir hýst engla án þess að vita. 3 Minnist bandingjanna sem væruð þið sambandingjar þeirra. [...]
Biblíulestur 14. maí – Heb 12.18-29
18 Þið eruð ekki komin til fjalls sem á verður þreifað, ekki til brennandi elds og sorta, myrkurs, ofviðris 19 og básúnuhljóms og raustar sem talaði svo að þeir sem [...]
Biblíulestur 13. maí – Heb 12.4-17
4 Enn sem komið er hefur barátta ykkar við syndina ekki kostað ykkur lífið. 5 Hafið þið gleymt hvernig Guð hvetur ykkur eins og börn sín:[ Barnið mitt, [ lítilsvirð [...]
Biblíulestur 12. maí – Jóh 14.1-11
Vegurinn, sannleikurinn, lífið 1 „Hjarta yðar skelfist ekki. Trúið á Guð og trúið á mig. 2 Í húsi föður míns eru margar vistarverur. Væri ekki svo hefði ég þá sagt [...]
Biblíulestur 11. maí – Slm 69.8-19
8Þín vegna ber ég háðung svo að andlit mitt roðnar af blygðun. 9Ég er ókunnur orðinn bræðrum mínum og framandi sonum móður minnar. 10Vandlæting vegna húss þíns hefur tært mig [...]
Biblíulestur 10. maí – Heb 11.32-12.3
11. kafli 32 Hvað á ég að orðlengja framar um þetta? Mig mundi skorta tíma ef ég færi að segja frá Gídeon, Barak, Samson og Jefta og af Davíð, Samúel [...]