Biblíulestur – 22. júlí – 5Mós 6.16–7.6
Þið skuluð ekki reyna Drottin eins og þið reynduð hann við Massa.
Þið eigið að halda fyrirmæli Drottins, Guðs ykkar, í einu og öllu, lög þau og ákvæði sem hann hefur sett ykkur. Þú skalt gera það sem rétt er og gott í augum Drottins svo að þér vegni vel og þú komist inn í og fáir til eignar landið góða sem Drottinn hét feðrum þínum. Drottinn mun ryðja öllum fjandmönnum úr vegi þínum eins og hann hefur heitið.
Þegar sonur þinn spyr þig seinna meir: „Hvaða fyrirmæli, lög og ákvæði eru þetta sem Drottinn, Guð okkar, setti ykkur?“ skaltu svara syni þínum: „Við vorum þrælar faraós í Egyptalandi en Drottinn leiddi okkur út úr Egyptalandi með sterkri hendi. Fyrir augum okkar gerði Drottinn mikil tákn og máttarverk sem skæð urðu Egyptalandi, faraó og allri fjölskyldu hans. En okkur leiddi hann þaðan til þess að fara með okkur inn í landið sem hann hafði heitið feðrum okkar að gefa okkur. Drottinn bauð okkur að fara að öllum þessum lögum og óttast Drottin, Guð okkar, svo að okkur vegnaði ætíð vel og hann léti okkur lífi halda eins og allt til þessa. Því aðeins hljótum við réttlæti að við gætum þess að fylgja öllum þessum fyrirmælum frammi fyrir augliti Drottins, Guðs okkar, eins og hann hefur boðið okkur.“
Þegar Drottinn, Guð þinn, hefur leitt þig inn í landið sem þú heldur nú inn í til að taka það til eignar, mun hann ryðja mörgum þjóðum úr vegi fyrir þér, Hetítum, Gírgasítum, Amorítum, Kanverjum, Peresítum, Hevítum og Jebúsítum, þeim sjö þjóðum sem eru fjölmennari og voldugri en þú. Þegar Drottinn, Guð þinn, hefur gefið þér þær á vald og þú hefur sigrað þær skaltu helga þær banni. Þú mátt ekki gera við þær sáttmála, ekki hlífa þeim og ekki mægjast við þær. Þú skalt hvorki gefa dætur þínar sonum þeirra né taka dætur þeirra til handa sonum þínum.
Það mundi snúa sonum þínum frá fylgd við mig svo að þeir færu að þjóna öðrum guðum. Þá mundi reiði Drottins blossa upp gegn ykkur og eyða þér þegar í stað. En þannig skuluð þið fara með þær: Þið skuluð rífa niður ölturu þeirra, brjóta merkisteina þeirra, höggva niður Asérustólpa og brenna skurðgoð þeirra í eldi. Því að þú ert heilög þjóð fyrir Drottni Guði þínum. Drottinn valdi þig til að verða eignarlýður hans meðal allra þjóða sem búa á yfirborði jarðar.
Biblíulestur 21. maí – Ester 2.8-23
8 Þegar tilskipanir og boð konungs urðu kunn var mörgum stúlkum safnað saman til hallar konungs í Súsa í umsjá Hegaí, þess sem gætti kvennabúrsins, og var Ester í hópi [...]
Biblíulestur 20. maí – Ester 1.21-2.7
1. kafli 21 Þessi ráð féllu konungi og höfðingjum hans vel í geð og gerði konungur eins og Memúkan hafði lagt til. 22 Hann lét senda boð um öll héruð [...]
Biblíulestur 19. maí – Jóh 15.12-17
12 Þetta er mitt boðorð, að þér elskið hvert annað eins og ég hef elskað yður. 13Enginn á meiri kærleik en þann að leggja líf sitt í sölurnar fyrir vini [...]
Biblíulestur 18. maí – Slm 69.20-37
20Þú þekkir háðung mína, skömm og svívirðing, allir fjendur mínir standa þér fyrir sjónum. 21Háðungin kramdi hjarta mitt svo að ég örvænti. Ég vonaði að einhver sýndi meðaumkun en þar [...]
Biblíulestur 17. maí – Ester 1.1-20
Veislan í Súsa 1 Xerxes konungur,[ sá er ríkti yfir hundrað tuttugu og sjö héruðum allt frá Indlandi til Eþíópíu, 2 sat að völdum í virkisborginni Súsa. 3 Á þriðja [...]
Biblíulestur 16. maí – Heb 13.17-25
17 Hlýðið leiðtogum ykkar og verið þeim eftirlát. Þeir vaka yfir sálum ykkar og eiga að lúka reikning fyrir þær. Verið þeim eftirlát til þess að þeir geti gert það [...]