12 Þetta er mitt boðorð, að þér elskið hvert annað eins og ég hef elskað yður. 13Enginn á meiri kærleik en þann að leggja líf sitt í sölurnar fyrir vini sína. 14 Þér eruð vinir mínir ef þér gerið það sem ég býð yður. 15 Ég kalla yður ekki framar þjóna því þjónninn veit ekki hvað húsbóndi hans gerir. En ég kalla yður vini því ég hef kunngjört yður allt sem ég heyrði af föður mínum. 16 Þér hafið ekki útvalið mig heldur hef ég útvalið yður. Ég hef ákvarðað yður til að fara og bera ávöxt, ávöxt sem varir svo að faðirinn veiti yður sérhvað það sem þér biðjið hann um í mínu nafni. 17 Þetta býð ég yður, að þér elskið hvert annað.