8Þín vegna ber ég háðung
svo að andlit mitt roðnar af blygðun.
9Ég er ókunnur orðinn bræðrum mínum
og framandi sonum móður minnar.
10Vandlæting vegna húss þíns hefur tært mig upp
og smánaryrði þeirra er smána þig hafa lent á mér.
11Ég auðmýkti mig með föstu
en fyrir það fékk ég háð eitt,
12hafði hærusekk fyrir klæði
og þeir ortu háðkvæði um mig.
13Þeir sem sitja í borgarhliðinu slúðra um mig
og drukknir menn syngja um mig háðkvæði.
14En ég bið til þín, Drottinn, á stund náðar þinnar.
Svara mér, Guð, í trúfesti hjálpræðis þíns
sakir mikillar miskunnar þinnar.
15Bjarga mér úr kviksyndinu svo að ég sökkvi eigi,
bjarga mér frá hatursmönnum mínum
og úr hafdjúpinu.
16Lát eigi vatnselginn færa mig í kaf,
né hyldýpið svelgja mig
og lát eigi brunninn ljúkast aftur yfir mér.
17Bænheyr mig, Drottinn, sakir gæsku náðar þinnar,
snú þér að mér af mikilli miskunn þinni.
18Hyl eigi auglit þitt fyrir þjóni þínum
því að ég er í nauðum staddur,
flýt þér að bænheyra mig.
19Ver mér nálægur, leys mig,
frelsa mig frá óvinum mínum.