Daglegur lestur2025-11-23T00:01:48+00:00

Biblíulestur – 20. júlí – Lúk 5.1–11

Nú bar svo til að Jesús stóð við Genesaretvatn og mannfjöldinn þrengdist að honum til að hlýða á Guðs orð. Þá sá hann tvo báta við vatnið en fiskimennirnir voru farnir í land og þvoðu net sín. Hann fór út í þann bátinn er Símon átti og bað hann að leggja lítið eitt frá landi, settist og tók að kenna mannfjöldanum úr bátnum.
Þegar hann hafði lokið ræðu sinni sagði hann við Símon: „Legg þú út á djúpið og leggið net ykkar til fiskjar.“
Símon svaraði: „Meistari, við höfum stritað í alla nótt og ekkert fengið en fyrst þú segir það skal ég leggja netin.“ Nú gerðu þeir svo og fengu þeir þá mikinn fjölda fiska en net þeirra tóku að rifna. Bentu þeir þá félögum sínum á hinum bátnum að koma og hjálpa sér. Þeir komu og hlóðu báða bátana svo að nær voru sokknir.
Þegar Símon Pétur sá þetta féll hann á kné frammi fyrir Jesú og sagði: „Far þú frá mér, Drottinn, því að ég er syndugur maður.“ En felmtur kom á hann og alla þá sem með honum voru vegna fiskaflans er þeir höfðu fengið. Eins var um Jakob og Jóhannes Sebedeussyni, félaga Símonar. Jesús sagði þá við Símon: „Óttast þú ekki, héðan í frá skalt þú menn veiða.“
Og þeir lögðu bátunum að landi, yfirgáfu allt og fylgdu honum.

Biblíulestur 9. maí – Heb 11.17-31

17 Fyrir trú fórnfærði Abraham Ísak er hann var reyndur. Og Abraham, sem fengið hafði fyrirheitin, var reiðubúinn að fórnfæra einkasyni sínum. 18 Við Abraham hafði Guð mælt: „Afkomendur Ísaks [...]

Biblíulestur 7. maí – Heb 10.19-39

Nýr og lifandi vegur 19 Vegna þess að Jesús úthellti blóði sínu megum við nú, systkin,[ með djörfung ganga inn í hið heilaga. 20 Þangað vígði hann okkur veginn, nýjan [...]

Biblíulestur 6. maí – Heb 10.1-18

Hin eina fórn 1 Lögmálið geymir aðeins skugga hins góða sem er í vændum, ekki skýra mynd þess. Þær sömu fórnir sem ár eftir ár eru bornar fram geta því [...]

Biblíulestur 5. maí – Jóh 21.15-19

Elskar þú mig 15 Þegar þeir höfðu matast sagði Jesús við Símon Pétur: „Símon Jóhannesson, elskar þú mig meira en þessir?“ Hann svarar: „Já, Drottinn, þú veist að ég elska [...]

Biblíulestur 4. maí – Slm 69.1-7

1 Til söngstjórans. Liljulag. Davíðssálmur. 2Hjálpa mér, ó Guð, því að vötnin ná mér upp að hálsi. 3Ég er sokkinn í botnlausa leðju og hef enga fótfestu. Ég er kominn [...]

Fara efst