Daglegur lestur2025-11-23T00:01:48+00:00

Biblíulestur – 19. júlí – Slm 104.1–18

Lofa þú Drottin, sála mín.
Drottinn, Guð minn, þú ert harla mikill.
Þú ert skrýddur dýrð og hátign,
sveipaður ljósi sem skikkju.
Þú þenur út himininn eins og tjalddúk,
reftir sal þinn ofar skýjum.
Þú gerir skýin að vagni þínum,
ferð um á vængjum vindsins.
Þú gerir vindana að sendiboðum þínum,
bálandi eld að þjónum þínum.
Þú grundvallar jörðina á undirstöðum hennar
svo að hún haggast eigi um aldur og ævi.
Frumdjúpið huldi hana eins og klæði,
vötnin náðu yfir fjöllin,
þau flýðu ógnun þína,
hrökkluðust undan þrumuraust þinni,
flæddu yfir fjöll, steyptust niður í dali,
þangað sem þú hafðir ætlað þeim stað.
Þú settir vatninu mörk sem það má ekki fljóta yfir,
aldrei framar skal það hylja jörðina.
Þú lést lindir spretta upp í dölunum,
þær streyma milli fjallanna,
þær svala öllum dýrum merkurinnar,
villiasnarnir slökkva þar þorsta sinn.
Við þær búa fuglar himinsins,
kvaka milli laufgaðra greina.
Þú vökvar fjöllin frá hásal þínum
og af ávexti verka þinna mettast jörðin.
Þú lætur gras spretta handa fénaðinum
og jurtir sem maðurinn ræktar
svo að jörðin gefi af sér brauð
og vín sem gleður mannsins hjarta,
olíu sem lætur andlit hans ljóma
og brauð sem veitir honum þrótt.
Tré Drottins drekka nægju sína,
sedrustré Líbanons sem hann gróðursetti.
Þar gera fuglar sér hreiður
og storkar eiga sér bústað í krónum þeirra.
Í gnæfandi fjöllum búa steingeitur
og klettarnir eru skjól stökkhéra.

Biblíulestur 3. maí – Heb 9.15-28

15 Þess vegna er hann meðalgangari nýs sáttmála. Hann dó og bætti að fullu fyrir afbrotin undir fyrri sáttmálanum til þess að þau sem Guð hafði kallað mættu öðlast hina [...]

Biblíulestur 2. maí – Heb 9.1-14

Helgidómur á himni og jörðu 1 Nú hafði fyrri sáttmálinn líka fyrirskipanir um þjónustuna og jarðneskan helgidóm. 2 Tjaldbúð var gerð og í fremri hluta hennar voru bæði ljósastikan, borðið [...]

Biblíulestur 1. maí – Jónas 4.1-11

Jónas andmælir miskunn Guðs 1 Jónas fylltist mikilli gremju, honum brann reiðin 2 og hann sagði við Drottin: „Ó, Drottinn! Var það ekki einmitt þetta sem ég sagði áður en [...]

Biblíulestur 29. apríl – Jónas 1.1-16

Jónas flýr frá Guði 1 Orð Drottins kom til Jónasar Amittaísonar: 2 „Leggðu af stað og farðu til Níníve, hinnar miklu borgar. Prédikaðu gegn henni því að illska hennar hefur [...]

Biblíulestur 28. apríl – Jóh 21.1-14

Jesús birtist við Tíberíasvatn 1 Eftir þetta birtist Jesús lærisveinunum aftur og þá við Tíberíasvatn. Hann birtist þannig: 2Þeir voru saman: Símon Pétur, Tómas, kallaður tvíburi, Natanael frá Kana í [...]

Fara efst