15 Þess vegna er hann meðalgangari nýs sáttmála. Hann dó og bætti að fullu fyrir afbrotin undir fyrri sáttmálanum til þess að þau sem Guð hafði kallað mættu öðlast hina eilífu arfleifð sem heitið var.
16 Arfleiðsluskrá[ tekur ekki gildi fyrr en sá er dáinn sem gerði hana. 17 Hún er óhagganleg þegar um látna er að ræða en er í engu gildi meðan arfleiðandi lifir. 18 Þess vegna var ekki heldur hinn fyrri sáttmáli settur án blóðs. 19 Þegar Móse hafði kunngjört gjörvöllum lýðnum öll boðorð lögmálsins, þá tók hann blóð kálfanna og hafranna, ásamt vatni og skarlatsrauðri ull og ísópi, og stökkti bæði á sjálfa bókina og allan lýðinn 20 og mælti: „Þetta er blóð sáttmálans sem Guð gerði við yður.“ 21 Sömuleiðis stökkti hann blóðinu á tjaldbúðina og öll áhöldin við helgiþjónustuna. 22 Og samkvæmt lögmálinu er það nálega allt sem hreinsast með blóði og eigi fæst fyrirgefning án úthellingar blóðs.

Í eitt skipti fyrir öll

23 Það var því óhjákvæmilegt að eftirmyndir þeirra hluta sem á himnum eru yrðu hreinsaðar með slíkum hætti. En sjálft hið himneska krefst betri fórna en þessara. 24 Því að Kristur gekk ekki inn í helgidóm höndum gerðan, eftirmynd hins sanna helgidóms, heldur inn í sjálfan himininn, til þess að birtast nú fyrir augliti Guðs okkar vegna. 25 Og ekki gerði hann það til þess að fórna sjálfum sér margsinnis eins og æðsti presturinn sem gengur inn í hið heilaga á ári hverju með annarra blóð. 26 Þá hefði hann oft þurft að líða frá grundvöllun heims. En nú hefur hann birst í eitt skipti fyrir öll við endi aldanna til að afmá syndina með fórn sinni. 27 Á sama hátt og það liggur fyrir mönnunum eitt sinn að deyja og eftir það að fá sinn dóm, 28þannig var Kristi fórnfært í eitt skipti til þess að bera[ syndir margra, og aftur mun hann birtast, ekki sem syndafórn heldur til að frelsa þá sem bíða hans.