Biblíulestur 1. maí – Jónas 4.1-11

2019-03-10T18:24:08+00:00Miðvikudagur 1. maí 2019|

Jónas andmælir miskunn Guðs

1 Jónas fylltist mikilli gremju, honum brann reiðin 2 og hann sagði við Drottin:
„Ó, Drottinn! Var það ekki einmitt þetta sem ég sagði áður en ég fór að heiman? Það var vegna þessa sem ég í fyrstu vildi flýja til Tarsis því að ég vissi að þú ert líknsamur og miskunnsamur Guð, þolinmóður og gæskuríkur, og þú iðrast ógæfunnar og lætur refsinguna ekki dynja yfir. 3En nú, Drottinn. Taktu líf mitt því að mér er betra að deyja en lifa.“ 4 Drottinn svaraði: „Gerir þú rétt er þú reiðist?“
5 Jónas hafði gengið út úr borginni og búið um sig fyrir austan hana í því skyni að reisa sér laufskála og setjast undir hann í skuggann og bíða þess hvað yrði í borginni. 6 Þá leiddi Drottinn Guð fram rísínusrunna. Hann óx yfir Jónas og varpaði skugga á höfuð hans og linaði beiskju hans og gladdist hann mjög af rísínusrunnanum.
7 En þegar birti af degi og roðaði af morgni sendi Guð orm sem stakk rísínusrunnann svo að hann visnaði. 8 Og er sól var á lofti leiddi Guð fram brennheitan eyðimerkurvindinn og sólin stakk Jónas í höfuðið svo að hann örmagnaðist. Þá óskaði hann sér dauða og sagði: „Ég vil heldur deyja en lifa.“
9 Guð sagði þá við Jónas: „Hyggurðu að þú reiðist með réttu vegna rísínusrunnans?“
Hann svaraði: „Ég geri rétt er ég reiðist til dauða.“

Svar Guðs

10 Þá sagði Drottinn: „Þú kennir í brjósti um rísínusrunnann sem þú hefur hvorki haft erfiði af né komið upp. Hann óx á einni nóttu og visnaði á einni nóttu. 11 Ætti ég ekki að sjá aumur á Níníve, hinni miklu borg, þar sem meira en hundrað og tuttugu þúsundir manna búa, sem þekkja vart hægri höndina frá þeirri vinstri, og að auki fjöldi dýra?“

Fara efst