Biblíulestur – 2. júní – Jóh 13.18–38
Ég tala ekki um yður alla. Ég veit hverja ég hef útvalið. En ritningin verður að rætast: Sá sem etur brauð mitt lyftir hæli sínum móti mér. Ég segi yður þetta núna áður en það verður svo að þér trúið þegar það er orðið að ég er sá sem ég er. Sannlega, sannlega segi ég yður: Sá sem tekur við þeim sem ég sendi, hann tekur við mér og sá sem tekur við mér, tekur við þeim er sendi mig.“
Þegar Jesús hafði sagt þetta varð honum mjög þungt um hjarta og hann sagði beinum orðum: „Sannlega, sannlega segi ég yður: Einn af yður mun svíkja mig.“
Lærisveinarnir litu hver á annan og skildu ekki við hvern hann ætti. Sá lærisveinn Jesú sem hann elskaði sat næstur honum. Símon Pétur benti honum og bað hann spyrja hver sá væri sem Jesús talaði um.
Hann laut þá að Jesú og spurði: „Drottinn, hver er það?“
Jesús svaraði: „Það er sá sem ég fæ bita þann er ég dýfi nú í.“ Þá dýfði hann í bitanum, tók hann og fékk Júdasi, syni Símonar Ískaríots. Og eftir þann bita fór Satan inn í hann. Jesús segir við hann: „Það sem þú gerir, það ger þú skjótt!“ En enginn þeirra sem sátu til borðs vissi til hvers hann sagði þetta við hann. En Júdas hafði pyngjuna og því héldu sumir þeirra að Jesús hefði sagt við hann: „Kauptu það sem við þurfum til hátíðarinnar,“ – eða að hann skyldi gefa eitthvað fátækum. Þá er hann hafði tekið við bitanum gekk hann jafnskjótt út. Þá var nótt.
Þegar hann var farinn út sagði Jesús: „Nú er Mannssonurinn dýrlegur orðinn og Guð er orðinn dýrlegur í honum. Fyrst Mannssonurinn hefur birt dýrð Guðs mun Guð veita honum dýrð sína og skjótt mun hann gera það. Börnin mín, stutta stund verð ég enn með yður. Þér munuð leita mín og eins og ég sagði Gyðingum segi ég yður nú: Þangað sem ég fer getið þér ekki komist. Nýtt boðorð gef ég yður, að þér elskið hvert annað. Eins og ég hef elskað yður skuluð þér einnig elska hvert annað. Á því munu allir þekkja að þér eruð mínir lærisveinar ef þér berið elsku hver til annars.“
Símon Pétur segir við hann: „Drottinn, hvert ferðu?“
Jesús svaraði: „Þú getur ekki fylgt mér nú þangað sem ég fer en síðar muntu fylgja mér.“
Pétur segir við hann: „Drottinn, hví get ég ekki fylgt þér nú? Ég vil leggja líf mitt í sölurnar fyrir þig.“
Jesús svaraði: „Viltu leggja líf þitt í sölurnar fyrir mig? Sannlega, sannlega segi ég þér: Ekki mun hani gala fyrr en þú hefur afneitað mér þrisvar.“
Biblíulestur 12. mars – Sak 4.1-14
Fimmta sýn: Ljósastika og ólífutré, Serúbabel 1 Engillinn, viðmælandi minn, vakti mig aftur, líkt og þegar menn eru vaktir af svefni, 2 og spurði mig: „Hvað sérðu?“ Ég svaraði: „Ég [...]
Biblíulestur 11. mars – Sak 3.1-10
Fjórða sýn: Jósúa æðsti prestur 1 Þessu næst lét hann mig sjá Jósúa æðsta prest. Hann stóð frammi fyrir engli Drottins en á hægri hönd honum Satan til að flytja [...]
Biblíulestur 10. mars – Lúk 22.31-34
Ég hef beðið fyrir þér 31 Símon, Símon, Satan krafðist að fá að sælda yður eins og hveiti svo að hismið kæmi í ljós. 32 En ég hef beðið fyrir [...]
Biblíulestur 9. mars – Slm 65.1-14
1 Til söngstjórans. Davíðssálmur. Ljóð. 2Þér ber lofsöngur, Guð á Síon, og við þig séu heitin efnd. 3Þú, sem heyrir bænir, til þín leita allir menn. 4Þegar misgjörðir vorar verða [...]
Biblíulestur 8. mars – Sak 2.1-17
Önnur sýn: Hornin fjögur 1 Ég leit upp og sá fjögur horn. 2 Og ég spurði engilinn, sem við mig talaði, og sagði: „Hvað er þetta?“ Hann svaraði: „Þetta eru [...]
Biblíulestur 7. mars – Sak 1.1-17
Hvatning til afturhvarfs 1 Í áttunda mánuði annars stjórnarárs Daríusar konungs barst orð Drottins Sakaría spámanni, syni Berekja Íddósonar: 2 Drottinn var afar reiður forfeðrum ykkar. 3 Segðu því við [...]