Biblíulestur – 30. ágúst – Okv 25.1–13
Þetta eru líka orðskviðir Salómons sem menn Hiskía Júdakonungs söfnuðu:
Guði er sæmd að dylja mál,
konungum sæmd að útkljá mál.
Eins og hæð himins og dýpt jarðar,
svo eru konungshjörtun órannsakanleg.
Sé sorinn tekinn úr silfrinu,
þá fær smiðurinn ker úr því.
Séu hinir ranglátu teknir burt frá augliti konungsins,
þá verður hásæti hans stöðugt í réttlæti.
Stærðu þig ekki frammi fyrir konunginum
og ætlaðu þér ekki stað stórmenna
því að betra er að menn segi við þig:
„Færðu þig hingað upp,“
en að menn niðurlægi þig frammi fyrir tignarmanni.
Hvað sem augu þín kunna að hafa séð,
vertu þá ekki of hvatur í málavafstur
því að hverjar verða lyktirnar
ef náungi þinn gerir þér minnkun?
Verðu rétt þinn gegn náunga þínum
en ljóstraðu ekki upp leyndarmálum annars manns
til þess að sá sem heyrir það átelji þig ekki
og þú fáir á þig varanlegt óorð.
Gullepli í silfurskálum,
svo eru vel valin orð.
Eins og gullhringur og skartgripur af skíru gulli,
svo er áminning viturs manns sem hlýtt er á.
Eins og snjósvali um uppskerutímann,
svo er áreiðanlegur sendiboði þeim sem sendir hann
því að hann hressir sál húsbónda síns.
Biblíulestur 20. janúar – 4Mós 22.36-23.10
22. kafli 36 Þegar Balak heyrði að Bíleam væri kominn gekk hann á móti honum til þeirrar borgar í Móab sem er við landamærin við Arnon í jaðri landsvæðisins. 37 [...]
Biblíulestur 19. janúar – Jóh 2.1-11
Fyrsta táknið 1 Á þriðja degi var brúðkaup í Kana í Galíleu. Móðir Jesú var þar. 2 Jesú var og boðið til brúðkaupsins og lærisveinum hans. 3 En er vín [...]
Biblíulestur 18. janúar – Slm 84.1-13
1 Til söngstjórans. Á gittít. Kóraítasálmur. 2Hversu yndislegir eru bústaðir þínir, Drottinn hersveitanna. 3Sálu mína langaði til, já, hún þráði forgarða Drottins, nú fagnar hjarta mitt og hold fyrir hinum [...]
Biblíulestur 17. janúar – 4Mós 22.22-35
22 En Guð reiddist af því að hann fór og engill Drottins gekk í veg fyrir hann til að hindra hann þegar hann kom ríðandi á ösnu sinni með tveimur [...]
Biblíulestur 16. janúar – 4Mós 22.13-21
13 Morguninn eftir fór Bíleam á fætur og sagði við hirðmenn Balaks: „Farið aftur heim til lands ykkar því að Drottinn leyfir mér ekki að fara með ykkur.“ 14 Hirðmennirnir [...]
Biblíulestur 15. janúar – 4Mós 21.32-22.12
21. kafli 32 Móse sendi menn til að njósna um Jaser og Ísraelsmenn unnu þorpin umhverfis hana og hröktu á brott Amoríta sem þar voru. 33 Síðan breyttu þeir um [...]