Fyrsta táknið

1 Á þriðja degi var brúðkaup í Kana í Galíleu. Móðir Jesú var þar. 2 Jesú var og boðið til brúðkaupsins og lærisveinum hans. 3 En er vín þraut segir móðir Jesú við hann: „Þeir hafa ekki vín.“
4 Jesús svarar: „Hvað viltu mér, kona? Minn tími er ekki enn kominn.“
5 Móðir hans sagði þá við þjónana: „Allt það sem hann segir ykkur, það skuluð þið gera.“
6 Nú voru þar sex vatnsker úr steini samkvæmt reglum Gyðinga um hreinsun og tók hvert þeirra tvo mæla eða þrjá. 7 Jesús segir við þá: „Fyllið kerin vatni.“ Þeir fylltu þau á barma. 8 Síðan segir hann: „Ausið nú af og færið veislustjóra.“ Þeir gerðu svo. 9 Veislustjóri bragðaði vatnið, sem var orðið vín, og vissi ekki hvaðan það var en þjónarnir, sem vatnið höfðu ausið, vissu það. Þá kallaði veislustjóri á brúðgumann 10 og sagði: „Allir menn bera fyrst fram góða vínið og síðan hið lakara er menn gerast ölvaðir. Þú hefur geymt góða vínið þar til nú.“
11 Þetta fyrsta tákn sitt gerði Jesús í Kana í Galíleu og opinberaði dýrð sína og lærisveinar hans trúðu á hann.