Biblíulestur – 31. ágúst – Lúk 18.9–14
Jesús sagði líka dæmisögu þessa við nokkra þá er treystu því að sjálfir væru þeir réttlátir en fyrirlitu aðra: „Tveir menn fóru upp í helgidóminn að biðjast fyrir. Annar var farísei, hinn tollheimtumaður.
Faríseinn sté fram og baðst þannig fyrir: Guð, ég þakka þér að ég er ekki eins og aðrir menn, ræningjar, ranglátir, hórkarlar eða þá eins og þessi tollheimtumaður. Ég fasta tvisvar í viku og geld tíund af öllu sem ég eignast.
En tollheimtumaðurinn stóð langt frá og vildi ekki einu sinni hefja augu sín til himins heldur barði sér á brjóst og sagði: Guð, vertu mér syndugum líknsamur! Ég segi yður: Tollheimtumaðurinn fór heim til sín sáttur við Guð, hinn ekki, því að hver sem upp hefur sjálfan sig mun auðmýktur verða en sá sem lítillækkar sjálfan sig mun upp hafinn verða.“
Biblíulestur 26. janúar – Matt 8.1-13
Verð þú hreinn 1 Nú gekk Jesús niður af fjallinu og fylgdi honum mikill mannfjöldi. 2 Þá kom til hans líkþrár maður, laut honum og sagði: „Drottinn, ef þú vilt [...]
Biblíulestur 25. janúar – Okv 20.1-15
1Vínið er illkvittið, sterkur drykkur glaumsamur, fávís verður sá sem lætur leiðast afvega. 2Reiði konungs er eins og ljónsöskur, sá sem egnir hann gegn sér hættir lífi sínu. 3Það er [...]
Biblíulestur 24. janúar – 4Mós 25.1-18
Hjáguðadýrkun Ísraelsmanna í Móab 1 Meðan Ísrael dvaldi í Sittím tók þjóðin að hórast með móabískum konum. 2 Þær buðu fólkinu til fórnarmáltíða guða sinna og fólkið neytti og féll [...]
Biblíulestur 23. janúar – 4Mós 24.10-25
10 Reiði Balaks blossaði nú upp gegn Bíleam, hann sló saman lófum og sagði við hann: „Ég sótti þig til að bölva fjandmönnum mínum en þú hefur blessað þá þrisvar. [...]
Biblíulestur 22. janúar – 4Mós 24.1-9
1 Þegar Bíleam skildi að það var Drottni þóknanlegt að blessa Ísrael vék hann ekki afsíðis til að leita spáfregna eins og fyrri skiptin, heldur sneri hann í átt til [...]
Biblíulestur 21. janúar – 3Mós 23.11-30
11 Balak sagði við Bíleam: „Hvað hefurðu gert mér? Ég sótti þig til að bölva fjandmönnum mínum en nú hefurðu margblessað þá.“ 12 Bíleam svaraði og sagði: „Á ég ekki [...]