Biblíulestur – 7. september – Mrk 7.31–37
Síðan hélt Jesús úr Týrusarbyggðum, um Sídon og yfir Dekapólisbyggðir miðjar til Galíleuvatns. Þá færa menn til hans daufan og málhaltan mann og biðja hann að leggja hönd sína yfir hann. Jesús leiddi hann afsíðis frá fólkinu, stakk fingrum sínum í eyru honum og vætti tungu hans með munnvatni sínu. Þá leit hann upp til himins, andvarpaði og sagði við hann: „Effaþa,“ það er: Opnist þú.
Og eyru hans opnuðust og haft tungu hans losnaði og hann talaði skýrt. Jesús bannaði þeim að segja þetta neinum en svo mjög sem hann bannaði þeim því frekar sögðu þeir frá því. Menn undruðust mjög og sögðu: „Allt gerir hann vel, daufa lætur hann heyra og mállausa mæla.“
Biblíulestur 8. mars – Matt 15.21-28
Kanversk kona 21 Þaðan hélt Jesús til byggða Týrusar og Sídonar. 22 Þá kom kona nokkur kanversk úr þeim héruðum og kallaði: „Miskunna þú mér, Drottinn, sonur Davíðs! Dóttir mín [...]
Biblíulestur 7. mars – Slm 88.1-13
1 Ljóð. Kóraítasálmur. Til söngstjórans. Syngist með makalatlagi. Hemansmaskíl Esraíta. 2Drottinn, Guð hjálpræðis míns, ég hrópa til þín um daga, um nætur er ég frammi fyrir þér, 3lát bæn mína [...]
Biblíulestur 6. mars – Róm 9.1-18
Guð og hans útvaldi lýður 1 Ég tala sannleika í Kristi, ég lýg ekki, samviska mín, upplýst af heilögum anda, vitnar það með mér 2 að ég hef mikla hryggð [...]
Biblíulestur 5. mars – Esra 10.18-44
Skrá yfir þá sem áttu útlendar konur 18 Af niðjum prestanna reyndust eftirtaldir hafa gengið að eiga framandi konur: Af niðjum Jesúa Jósadakssonar og bræðra hans þeir Maaseja, Elíeser, Jaríb [...]
Biblíulestur 4. mars – Esra 10.7-17
7 Nú var boð látið ganga til allra í Júda og Jerúsalem, sem heim höfðu snúið, og þeim stefnt saman í Jerúsalem. 8 Hver sem ekki kæmi innan þriggja daga [...]
Biblíulestur 3. mars – Esra 9.10-10.6
9. kafli 10 En Guð, hvað getum vér nú sagt eftir allt þetta? Vér höfum horfið frá boðum þínum 11 sem þú lést spámennina, þjóna þína, leggja fyrir oss og [...]