Daglegur lestur2025-11-23T00:01:48+00:00

Biblíulestur – 6. september – Slm 105.36–45

Hann laust alla frumburði í landi þeirra til bana,
frumgróða karlmennsku þeirra.
Síðan leiddi hann þá út með silfri og gulli
og enginn af ættbálkum hans hrasaði.
Egyptar glöddust yfir brottför þeirra
því að ótti var kominn yfir þá.
Hann breiddi út ský sem hlíf
og eld til að lýsa um nætur.
Þeir báðu, þá sendi hann lynghænsn
og mettaði þá með brauði af himni.
Hann klauf klett og vatn vall fram,
rann sem fljót um skrælnað land.
Þar sem hann minntist síns heilaga heits
við Abraham þjón sinn
leiddi hann lýð sinn með gleði,
sína útvöldu með fögnuði.
Hann gaf þeim lönd annarra þjóða,
þeir eignuðust ávöxt af erfiði þjóðanna
svo að þeir héldu lög hans
og varðveittu boðorð hans.
Hallelúja.

Biblíulestur 2. mars – Esra 8.35-9.9

8. kafli 35 Þeir sem komu heim úr útlegðinni, hinir landflótta, færðu nú Guði Ísraels brennifórnir, tólf naut fyrir allan Ísrael, níutíu og sex hrúta og sjötíu og sjö lömb [...]

Biblíulestur 1. mars – Matt 4.1-11

Jesú freistað 1 Þá leiddi andinn Jesú út í óbyggðina til þess að djöfullinn gæti freistað hans. 2 Þar fastaði Jesús fjörutíu daga og fjörutíu nætur og var þá orðinn [...]

Biblíulestur 27. febrúar – Esra 8.1-20

Skrá yfir þá sem sneru heim með Esra 1 Þetta eru ættarhöfðingjarnir sem fóru með mér heim frá Babýlon í stjórnartíð Artaxerxesar konungs og þeir sem skráðir eru í niðjaskrá [...]

Fara efst