Biblíulestur – 5. september – 5Mós 19.1–13
Þegar Drottinn, Guð þinn, upprætir þjóðirnar sem búa í landinu sem Drottinn, Guð þinn, mun fá þér og þú hefur tekið eignir þeirra og ert sestur að í borgum þeirra og húsum, þá skaltu veita þremur borgum sérstöðu í landinu sem Drottinn, Guð þinn, fær þér svo að þú sláir eign þinni á það. Þú skalt stika út veginn að þeim og skipta landinu, sem Drottinn, Guð þinn, gefur þér að erfðahlut, í þrennt til þess að hver sá sem orðið hefur öðrum að bana geti flúið til þessara borga.
Þetta skal gilda um þann sem hefur orðið manni að bana og flýr þangað til að bjarga lífi sínu. Hafi hann óviljandi orðið öðrum að bana og án þess að hafa áður verið óvinur hans, svo sem þegar maður fer við annan mann út í skóg til að fella tré, reiðir upp öxina til að höggva tréð en hún gengur af skaftinu og lendir á náunga hans svo að hann fær bana af, getur sá maður flúið til einhverrar þessara borga til að bjarga lífi sínu.
Leiðin til griðaborgarinnar má ekki vera of löng svo að hefnandi, sem eltir veganda, geti náð honum og drepið hann, knúinn hefndarþorsta, þótt banamaðurinn sé ekki dauðasekur enda ekki óvinur hans áður.
Af þessum sökum býð ég þér og segi: Þú skalt veita þremur borgum sérstöðu. Ef Drottinn, Guð þinn, eykur land þitt, eins og hann hét forfeðrum þínum, og gefur þér allt landið sem hann hafði heitið þeim, þar sem þú heldur öll boðorðin sem ég set þér í dag, framfylgir þeim með því að elska Drottin, Guð þinn, og ganga á hans vegum alla ævi, þá skaltu enn bæta þremur borgum við þessar þrjár. Með því skal komið í veg fyrir að saklausu blóði verði úthellt og blóðsekt komi yfir þig í landi þínu sem Drottinn, Guð þinn, gefur þér að erfðahlut.
En hatist maður við náunga sinn, sitji um hann, ráðist á hann og ljósti hann til bana og flýi síðan í einhverja af griðaborgunum, skulu öldungar heimaborgar hans senda menn og sækja hann þangað. Þeir skulu framselja hann til lífláts í hendur þess sem á blóðsektar að hefna. Þú skalt ekki sýna honum neina samúð heldur hreinsa Ísrael af sök vegna saklauss blóðs svo að þér farnist vel.
Biblíulestur 25. febrúar – Esra 7.11-28
Tilskipun konungs 11 Hér fer á eftir afrit þeirrar tilskipunar sem Artaxerxes konungur fékk Esra, presti og fræðimanni, sem var fróður um boðorð Drottins og lög sem hann hafði gefið [...]
Biblíulestur 24. febrúar – Esra 6.16-7.10
6. kafli 16 Ísraelsmenn, það er prestarnir, Levítarnir og aðrir, sem komnir voru heim úr útlegðinni, héldu vígsluhátíð húss Guðs með fögnuði. 17 Við vígslu húss Guðs fórnuðu þeir hundrað [...]
Biblíulestur 23. febrúar – Lúk 18.31-34
Allt mun koma fram 31 Jesús tók þá tólf til sín og sagði við þá: „Nú förum við upp til Jerúsalem og mun allt það koma fram sem spámennirnir hafa [...]
Biblíulestur 22. febrúar – Slm 87.1-7
1 Kóraítasálmur. Ljóð. Drottinn grundvallaði borg sína á heilögum fjöllum. 2Hann elskar hlið Síonar meira en alla bústaði Jakobs, 3dýrlega er talað um þig, þú borg Guðs. (Sela) 4Fólk frá [...]
Biblíulestur 21. febrúar – Esra 6.1-15
Daríus styður musterisbygginguna 1 Þá gaf Daríus konungur skipun um að leitað skyldi í fjárhirslunni þar sem skjöl voru geymd í Babýlon. 2 Fannst þá bókfell í virkisborginni Ahmeta í [...]
Biblíulestur 20. febrúar – Esra 5.1-17
Musterisbygging hafin að nýju 1 Haggaí spámaður og Sakaría Iddóson spámaður fluttu nú Gyðingum í Júda og Jerúsalem spámannlegan boðskap í nafni Guðs Ísraels sem var yfir þeim. 2 Þá [...]