Biblíulestur – 4. september – 5Mós 18.9–22
Þegar þú kemur inn í landið sem Drottinn, Guð þinn, gefur þér skaltu ekki temja þér sömu svívirðingar og þjóðirnar þar.
Á meðal ykkar má enginn finnast sem lætur son sinn eða dóttur ganga gegnum eld, enginn sem leitar goðsvara með hlutkesti, enginn sem les óorðna atburði úr skýjum eða úr bikar, enginn galdramaður, enginn sem fer með særingar, leitar ráða hjá öndum eða spásagnarmönnum, enginn sem leitar úrskurðar hjá framliðnum.
Því að hver sem stundar þetta er Drottni viðurstyggð. Sakir þessara viðurstyggða rýmdi Drottinn þjóðum landsins úr vegi ykkar. Þú skalt vera óskiptur með Drottni, Guði þínum. Þessar þjóðir, sem þú hrekur burt, hafa hlýtt skýjaspámönnum og þeim sem lesa úr hlutkesti en Drottinn, Guð þinn, hefur ekki ætlað þér slíkt.
Spámann slíkan sem ég er mun Drottinn, Guð þinn, láta fram koma úr hópi ættbræðra þinna. Á hann skuluð þið hlýða. Hann mun að öllu leyti uppfylla það sem þú baðst Drottin, Guð þinn, um á Hóreb daginn sem þið komuð þar saman og þú sagðir: „Lát mig ekki heyra aftur þrumuraust Drottins, Guðs míns, né líta aftur þennan mikla eld svo að ég deyi ekki.“ Þá sagði Drottinn við mig: „Það sem þeir segja er rétt. Fyrir þá mun ég láta fram koma spámann slíkan sem þú ert úr hópi bræðra þeirra. Ég mun leggja honum orð mín í munn og hann mun boða þeim allt sem ég býð honum. Og hvern þann sem ekki hlýðir á þau orð, sem spámaðurinn flytur í mínu nafni, mun ég sjálfur draga til ábyrgðar.
En sá spámaður, sem dirfist að tala það í mínu nafni, sem ég hef ekki falið honum, eða flytur boðskap í nafni annarra guða, sá spámaður skal deyja.
Ef þú hugsar með sjálfum þér: Hvernig getum við þekkt það orð sem Drottinn hefur ekki talað? skaltu vita: Þegar spámaður talar í nafni Drottins og það sem hann hefur sagt kemur hvorki fram né rætist, þá eru það orð sem Drottinn hefur ekki talað. Spámaðurinn hefur talað af ofdirfsku sinni, þú þarft ekki að óttast neitt sem hann segir.“
Biblíulestur 19. febrúar – Esra 4.1-24
Andstaða gegn musterisbyggingunni 1 Þegar andstæðingar Júda og Benjamíns fréttu að þeir sem voru komnir heim úr útlegðinni væru að reisa Drottni, Guði Ísraels, musteri, 2 fóru þeir til Serúbabels [...]
Biblíulestur 18. febrúar – Esra 3.1-13
Endurreisn musterisins 1 Í upphafi sjöunda mánaðarins, þegar Ísraelsmenn voru sestir að í borgum sínum, safnaðist öll þjóðin saman eins og einn maður í Jerúsalem. 2 Þá hófu þeir Jesúa [...]
Biblíulestur 17. febrúar – Esra 2.43-70
43 Musterisþjónarnir voru: niðjar Síha, niðjar Hasúfa, niðjar Tabbaóts, 44 niðjar Kerós, niðjar Síaha, niðjar Padóns, 45 niðjar Lebana, niðjar Hagaba, niðjar Akúbs, 46 niðjar Hagabs, niðjar Salmaí, niðjar Hanans, [...]
Biblíulestur á Biblíudaginn – Lúk 8.4-15
Sæði sáð 4 Nú var mikill fjöldi saman kominn og menn komu til Jesú úr hverri borg af annarri. Þá sagði hann þessa dæmisögu: 5 „Sáðmaður gekk út að sá [...]
Biblíulestur 15. febrúar – Slm 86.12-17
12Ég vil þakka þér, Drottinn, Guð minn, af öllu hjarta og tigna nafn þitt að eilífu 13því að miskunn þín er mikil við mig, þú hefur frelsað sál mína frá [...]
Biblíulestur 14. febrúar – Esra 2.1-42
Skrá yfir þá sem sneru aftur 1 Þetta eru þeir íbúar skattlandsins sem sneru heim úr útlegð hinna herteknu. Nebúkadnesar, konungur í Babýlon, hafði flutt þá í útlegð til Babýlonar. [...]