Biblíulestur – 3. september – 5Mós 18.1–8
Enginn Levítaprestur, enginn af ættkvísl Leví, skal hljóta land eða erfðahlut eins og aðrir í Ísrael. Þeir skulu hafa viðurværi af eldfórnum Drottins, af erfðahlut hans. Ættbálkur Leví skal ekki fá erfðahlut meðal bræðra sinna. Drottinn er erfðahlutur hans eins og Drottinn hefur heitið honum.
Þennan rétt skulu prestarnir hafa hjá þjóðinni, af hálfu þeirra sem færa sláturfórn, hvort heldur naut eða lamb: prestinum skal gefa bóginn, báða kjammana og vinstrina. Þú skalt gefa prestinum frumgróðann af korni þínu, víni og olíu og fyrstu ullina sem þú tekur af sauðfé þínu. Því að Drottinn, Guð þinn, hefur valið ættbálk Leví úr öllum öðrum ættbálkum þínum til þess að hann gegni þjónustu í nafni Drottins alla ævidaga sína.
Þegar Levíti úr einhverri borg þinni, einhvers staðar í Ísrael, þar sem hann hefur dvalist sem aðkomumaður, vill koma til staðarins sem Drottinn velur er hann frjáls að því svo oft sem hann vill. Hann má þjóna þar í nafni Drottins eins og allir aðrir bræður hans, Levítarnir, sem gegna þjónustu frammi fyrir Drottni. Þeir skulu fá sama hlut og hinir sér til viðurværis enda þótt þeir hafi þegið fé fyrir föðurleifð sína.
Biblíulestur 13. febrúar – Esra 1.1-11
Kýrus veitir útlögunum heimfararleyfi 1 Á fyrsta stjórnarári Kýrusar Persakonungs blés Drottinn honum því í brjóst að láta boð út ganga um allt ríki sitt. Það var til þess að [...]
Biblíulestur 12. febrúar – Róm 8.18-39
Dýrðarfrelsi Guðs barna 18 Ég lít svo á að þjáningar þessa tíma séu ekki neitt í samanburði við þá dýrð sem á okkur mun opinberast. 19 Því að sköpunin vonar [...]
Biblíulestur 11. febrúar – Róm 8.1-17
Lífið í andanum 1 Nú er því engin fyrirdæming búin þeim sem eru í Kristi Jesú. 2 Því að lögmál þess anda sem lífið gefur í Kristi Jesú hefur frelsað [...]
Biblíulestur 10. febrúar – Róm 7.1-25
Dáin lögmálinu 1 Þið vitið, systkin – ég tala hér við menn sem þekkja lögmálið – að lögmálið ræður ekki yfir manni lengur en hann lifir. 2 Þannig er gift [...]
Biblíulestur 9. febrúar – Matt 20.1-16
Í víngarði 1 Jesús sagði þessa dæmisögu: „Líkt er um himnaríki og húsbónda einn sem gekk út árla morguns að ráða verkamenn í víngarð sinn. 2 Hann samdi við verkamennina [...]
Biblíulestur 8. febrúar – Slm 86.1-11
1 Bæn Davíðs. Hneig eyra þitt, Drottinn, og bænheyr mig því að ég er hjálparvana og snauður. 2Vernda líf mitt því að ég er þér trúr. Þú ert Guð minn, [...]