Biblíulestur – 8. september – 5Mós 19.14–21
Þú skalt ekki færa úr stað landamerki nágranna þíns sem forfeðurnir hafa sett í erfðalandi þínu sem kemur í hlut þinn í landinu sem Drottinn, Guð þinn, fær þér til eignar.
Ekki nægir eitt vitni á móti neinum þeim sem sakaður er um afbrot eða glæp, hvert svo sem brotið er. Því aðeins skal framburður gilda að tvö eða þrjú vitni beri.
En komi fram ljúgvitni gegn einhverjum og beri að hann hyggi á lögbrot skulu báðir sem hlut eiga að deilunni koma fram fyrir Drottin, prestana og dómarana sem þá gegna embætti. Dómararnir skulu rannsaka málsatvik rækilega. Komi þá í ljós að þetta er ljúgvitni, sem borið hefur bróður sinn lognum sökum, skuluð þið fara með hann eins og hann ætlaði að fara með bróður sinn og þannig skaltu eyða hinu illa þín á meðal. Hinir skulu frétta þetta svo að þeir skelfist og drýgi ekki framar þvílíkt ódæði þín á meðal. Þú skalt enga vægð sýna honum: Líf fyrir líf, auga fyrir auga, tönn fyrir tönn, hönd fyrir hönd, fót fyrir fót.
Biblíulestur 14. mars – Slm 88.14-19
14En ég hrópa til þín, Drottinn, bæn mín berst þér að morgni. 15Hví útskúfar þú mér, Drottinn, og hylur auglit þitt fyrir mér? 16Ég var beygður og í dauðans greipum [...]
Biblíulestur 13. mars – Róm 11.28-12.8
11. kafli 28 Í ljósi fagnaðarerindisins eru þeir óvinir Guðs. Það varð til þess að þið fenguð að heyra fagnaðarerindið. En í ljósi útvalningar sinnar eru þeir elskaðir sakir forfeðranna. [...]
Biblíulestur 12. mars – Róm 11.11-27
11 Nú spyr ég: Hrösuðu þá Ísraelsmenn til þess að falla að fullu? Fjarri fer því. Fall þeirra varð heiðingjum hjálpræði. Það átti að vekja afbrýði hjá Gyðingum. 12 Hafi [...]
Biblíulestur 11. mars – Róm 11.1-10
Guð hefur ekki útskúfað lýð sínum 1 Ég spyr nú: Hefur Guð útskúfað lýð sínum? Öðru nær! Sjálfur er ég Ísraelsmaður, af kyni Abrahams, ættkvísl Benjamíns. 2 Guð hefur ekki [...]
Biblíulestur 10. mars – Róm 10.1-21
Ísrael og fagnaðarerindið 1 Systkin, það er hjartans ósk mín og bæn til Guðs að þeir megi hólpnir verða. 2 Það ber ég þeim að þeir eru heitir í trú [...]
Biblíulestur 9. mars – Róm 9.19-33
Guð sýnir hve ómælanleg dýrð hans er 19 Þú munt nú vilja segja við mig: „Hvað er hann þá að ásaka okkur framar? Hver fær staðið gegn vilja hans?“ 20 [...]