Biblíulestur – 27. september – Okv 25.14–28
Ský og vindur en engin rigning,
svo er sá sem hrósar sér af örlæti en gefur þó ekkert.
Með þolinmæði má telja höfðingja hughvarf,
mjúk tunga mylur bein.
Finnir þú hunang fáðu þér nægju þína
svo að þú verðir ekki ofsaddur af því og spýir því upp.
Stígðu fæti þínum hóflega oft í hús náunga þíns
svo að hann verði ekki leiður á þér og honum í nöp við þig.
Sleggja, sverð, hvöss ör,
svo er sá sem ber falsvitni gegn náunga sínum.
Laus tönn og hrasandi fótur,
slíkt er traust á svikara á degi neyðarinnar.
Að fara úr fötum í kalsaveðri,
að hella ediki í sár,
eins er að syngja sorgmæddum gleðisöngva.
Ef óvin þinn hungrar gefðu honum þá að eta
og þyrsti hann gefðu honum þá að drekka
því að þú safnar glóðum elds að höfði honum
og Drottinn mun endurgjalda þér það.
Norðanvindurinn ber með sér regn
og launskraf reiðileg andlit.
Betri er dvöl í horni á húsþaki
en sambúð við þrasgjarna konu.
Eins og kalt vatn í skrælnaða kverk,
svo er heillafregn úr fjarlægu landi.
Eins og grugguð lind og skemmdur brunnur,
svo er réttlátur maður er lætur undan vondum manni.
Of mikið hunangsát er ekki gott,
vertu því spar á hólið.
Eins og opin borg án borgarmúra,
svo er sá maður sem ekki hefur stjórn á skapi sínu.
Biblíulestur 11. júlí – Slm 98.1-9
1 Sálmur. Syngið Drottni nýjan söng því að hann hefur unnið dásemdarverk, hægri hönd hans hjálpaði honum og heilagur armur hans. 2Drottinn kunngjörði hjálpræði sitt og sýndi þjóðunum réttlæti sitt. [...]
Biblíulestur 10. júlí – Jer 31.1-14
1Á þeim tíma, segir Drottinn, verð ég Guð allra ættbálka Ísraels og þeir verða lýður minn. Heimför úr útlegð 2Svo segir Drottinn: Sú þjóð sem komst undan sverðinu hlaut náð [...]
Biblíulestur 9. júlí – Jer 30.12-24
12Svo segir Drottinn: Brot þitt verður ekki grætt, sár þitt ekki læknað. 13Enginn leitar réttar þíns. Meinið hefst illa við, þú færð enga bót. 14Allir vinir þínir hafa gleymt þér, [...]
Biblíulestur 8. júlí – Jer 30.1-11
Bók huggunarinnar 1 Orðið sem kom frá Drottni til Jeremía: 2 Svo segir Drottinn, Guð Ísraels: Skráðu í bók öll þau orð sem ég hef flutt þér. 3 Því að [...]
Biblíulestur 7. júlí – Jer 29.16-32
16 Svo segir Drottinn um konunginn sem situr í hásæti Davíðs og allt fólkið sem býr í þessari borg, bræður yðar sem ekki þurftu að fara í útlegð með yður: [...]
Biblíulestur 6. júlí – Jer 29.1-15
Bréf Jeremía til útlaganna í Babýlon 1 Þannig hljóðar bréfið sem Jeremía spámaður sendi frá Jerúsalem til þeirra sem eftir voru af öldungum útlaganna, til prestanna, spámannanna og alls fólksins [...]