Daglegur lestur2025-11-23T00:01:48+00:00

Biblíulestur – 28. september – Matt 6.24–34

Enginn getur þjónað tveimur herrum. Annaðhvort hatar hann annan og elskar hinn eða þýðist annan og afrækir hinn. Þér getið ekki þjónað Guði og mammón.
Því segi ég yður: Verið ekki áhyggjufull um líf yðar, hvað þér eigið að eta eða drekka né heldur um líkama yðar, hverju þér eigið að klæðast. Er lífið ekki meira en fæðan og líkaminn meira en klæðin? Lítið til fugla himinsins. Hvorki sá þeir né uppskera né safna í hlöður og faðir yðar himneskur fæðir þá. Eruð þér ekki miklu fremri þeim? Og hver yðar getur með áhyggjum aukið einni spönn við aldur sinn?
Og hví eruð þér áhyggjufull um klæðnað? Hyggið að liljum vallarins, hversu þær vaxa. Hvorki vinna þær né spinna. En ég segi yður: Jafnvel Salómon í allri sinni dýrð var ekki svo búinn sem ein þeirra. Fyrst Guð skrýðir svo gras vallarins sem í dag stendur en á morgun verður í ofn kastað, skyldi hann þá ekki miklu fremur klæða yður, þér trúlítil!
Segið því ekki áhyggjufull: Hvað eigum vér að eta? Hvað eigum vér að drekka? Hverju eigum vér að klæðast? Allt þetta stunda heiðingjarnir og yðar himneski faðir veit að þér þarfnist alls þessa. En leitið fyrst ríkis hans og réttlætis, þá mun allt þetta veitast yður að auki. Hafið því ekki áhyggjur af morgundeginum. Morgundagurinn mun hafa sínar áhyggjur. Hverjum degi nægir sín þjáning.

Biblíulestur 16. júlí – Jer 32.9-25

Þá skildi ég að þetta voru boð frá Drottni 9 og keypti akurinn í Anatót af Hanameel, syni föðurbróður míns. Ég greiddi honum verðið, sautján sikla silfurs. 10 Síðan skrifaði [...]

Biblíulestur 15. júlí – Jer 31.38-32.8

31. kafli Hin nýja Jerúsalem 38 Þeir dagar koma, segir Drottinn, að borg Drottins verður endurreist frá turni Hananels að Hornhliðinu. 39 Mælisnúran mun liggja beint að Garebhæð og sveigja [...]

Biblíulestur 13. júlí – Jer 31.15-26

Ramakvein 15Svo segir Drottinn: Rödd heyrist í Rama, harmakvein, beiskur grátur. Rakel grætur börn sín, [ hún vill ekki huggast láta vegna barna sinna því að þau eru ekki framar [...]

Fara efst