27 Þeir dagar koma, segir Drottinn, að ég mun fjölga bæði mönnum og dýrum í Ísrael og Júda. 28Ég vakti yfir þeim til að uppræta, rífa, brjóta, eyða og valda skaða; eins mun ég vaka yfir þeim til að byggja og gróðursetja, segir Drottinn.

Ábyrgð á eigin gerðum

29 Á þeim dögum verður ekki lengur sagt: „Feðurnir átu súr vínber og tennur barna þeirra urðu sljóar.“ 30 Nei, sérhver mun deyja vegna eigin sektar; hver sá sem etur súr vínber fær sljóar tennur.

Nýr sáttmáli

31 Þeir dagar koma, segir Drottinn, þegar ég geri nýjan sáttmála við Ísraelsmenn og Júdamenn. 32Hann verður ekki eins og sáttmálinn sem ég gerði við feður þeirra þegar ég tók í hönd þeim og leiddi þá út úr Egyptalandi. Þeir rufu þann sáttmála við mig þótt ég væri herra þeirra, segir Drottinn. 33Þannig er sáttmálinn sem ég mun gera við Ísraelsmenn þegar þessir dagar eru liðnir, segir Drottinn: Ég legg lögmál mitt þeim í brjóst og rita það á hjörtu þeirra. Ég verð Guð þeirra og þeir verða lýður minn. 34 Enginn mun framar þurfa að kenna landa sínum og bróður og segja: Þekkið Drottin. Allir munu þekkja mig, bæði stórir og smáir, segir Drottinn. Ég mun fyrirgefa þeim sekt þeirra og minnist ekki framar syndar þeirra.

Skikkan skaparans

35 Svo segir Drottinn,
sem setti sólina til að lýsa um daga
og tungl og stjörnur til að lýsa um nætur,
sem æsir hafið svo að öldurnar gnýja,
Drottinn hersveitanna er nafn hans:
36 Raskist þessi skipan fyrir augliti mínu
hætta niðjar Ísraels að vera þjóð fyrir augliti mínu
fyrir fullt og allt, segir Drottinn.
37 Svo segir Drottinn:
Ef himinninn yfir oss yrði mældur
og undirstöður jarðar hið neðra rannsakaðar
mundi ég hafna öllum niðjum Ísraels
vegna alls þess sem þeir hafa gert,
segir Drottinn.