16 Svo segir Drottinn um konunginn sem situr í hásæti Davíðs og allt fólkið sem býr í þessari borg, bræður yðar sem ekki þurftu að fara í útlegð með yður: 17 Svo segir Drottinn hersveitanna: Ég sendi sverð, hungur og drepsótt gegn þeim og ég fer með þá eins og með rotnu fíkjurnar sem eru svo vondar að þær eru óætar. 18 Ég ofsæki þá með sverði, hungri og drepsótt og læt þá valda öllum konungsríkjum jarðar skelfingu. Ég geri þá að tilefni formælinga og skelfingar, háðs og spotts meðal allra þeirra þjóða sem ég hrek þá til 19 af því að þeir hafa ekki hlustað á orð mín, segir Drottinn. Ég sendi þjóna mína, spámennina, hvað eftir annað til þeirra en þeir hlustuðu ekki, segir Drottinn. 20 En þér, útlagarnir, sem ég rak frá Jerúsalem til Babýlonar, hlustið á orð Drottins.
21 Svo segir Drottinn hersveitanna, Guð Ísraels, um Ahab Kólajason og Sedekía Maasejason sem boða yður lygar í mínu nafni: Ég sel þá í hendur Nebúkadresari konungi í Babýlon. Hann mun láta höggva þá fyrir augum yðar. 22 Á meðal útlaganna frá Júda, sem eru í Babýlon, verða nöfn þeirra notuð til bölbæna og sagt: „Drottinn fari með þig eins og Sedekía og Ahab sem konungur Babýlonar steikti yfir eldi.“ 23 Þetta verður af því að þeir frömdu óhæfuverk í Ísrael, drýgðu hór með eiginkonum landa sinna og fluttu boðskap í mínu nafni, lygar sem ég hafði ekki lagt fyrir þá. Ég veit það sjálfur og er vitni þess, segir Drottinn.

Svar Semaja spámanns

24 Þetta skaltu segja við Semaja frá Nehalam: 25 Svo segir Drottinn hersveitanna, Guð Ísraels: Þú hefur í eigin nafni sent bréf til allra sem búa í Jerúsalem, til Sefanía prests Maasejasonar og allra hinna prestanna og sagt: 26 „Drottinn hefur gert þig að presti í stað Jójada prests. Þú átt að hafa stjórn á öllum sturluðum mönnum í musterinu, sem koma fram í spámannlegri leiðslu, og setja þá í gapastokk og hálsjárn. 27 Hvers vegna hefur þú ekki ávítað Jeremía frá Anatót sem nú kemur fram í spámannlegri leiðslu meðal yðar? 28 Því að hann hefur sent oss í Babýlon boð: Þetta mun vara lengi. Reisið hús og búið í þeim. Gróðursetjið garða og neytið ávaxta þeirra.“
29 Sefanía prestur las þetta bréf fyrir Jeremía spámann. 30 Þá kom orð Drottins til Jeremía: 31Sendu þennan boðskap til allra útlaganna: Svo segir Drottinn um Semaja frá Nehalam: Semaja hefur flutt yður spámannlegan boðskap þó að ég hafi ekki sent hann. Hann hefur blekkt yður til að reiða yður á lygar. 32 Þess vegna segir Drottinn: Ég mun draga Semaja frá Nehalam og niðja hans til ábyrgðar. Enginn af ættmennum hans mun búa með þessu fólki og njóta þeirra gæða sem ég mun veita þjóð minni, segir Drottinn, því að hann hefur hvatt til fráhvarfs frá Drottni.