Biblíulestur – 11. október – Slm 106.40–48
Þá blossaði reiði Drottins upp gegn lýð sínum
og hann fékk andstyggð á arfleifð sinni.
Hann seldi þá öðrum þjóðum í hendur,
hatursmenn þeirra drottnuðu yfir þeim,
fjandmenn þeirra kúguðu þá
og þeir urðu að beygja sig undir vald þeirra.
Hvað eftir annað bjargaði hann þeim
en þeir þrjóskuðust gegn ráðum hans
og sukku dýpra í synd sína.
Hann leit til þeirra í neyðinni
þegar hann heyrði kvein þeirra.
Hann minntist sáttmála síns við þá,
aumkaðist yfir þá vegna mikillar miskunnar sinnar
og lét þá finna miskunn
hjá öllum þeim sem höfðu flutt þá í útlegð.
Hjálpa þú oss, Drottinn, Guð vor,
og safna oss saman frá þjóðunum,
svo að vér getum lofað þitt heilaga nafn
og fagnandi sungið þér lof.
Lofaður sé Drottinn, Ísraels Guð,
frá eilífð til eilífðar.
Allur lýðurinn segi: Amen.
Hallelúja.
Biblíulestur 8. október – Post 8.1-13
1 Sál lét sér vel líka líflát hans. Sál ofsækir söfnuðinn Á þeim degi hófst mikil ofsókn gegn söfnuðinum í Jerúsalem. Allir nema postularnir dreifðust út um byggðir Júdeu og [...]
Biblíulestur 7. október – Post 7.38-60
38 Það var hann sem var í söfnuðinum í eyðimörkinni, ásamt englinum sem talaði við hann á Sínaífjalli, og með feðrum vorum. Hann tók á móti lifandi orðum að gefa [...]
Biblíulestur 6. október – Post 7.20-37
20 Um þessar mundir fæddist Móse og var forkunnarfríður. Þrjá mánuði var hann fóstraður í húsi föður síns. 21 En er hann var út borinn tók dóttir faraós hann og [...]
Biblíulestur 5. október – Post 7.1-19
1 Þá spurði æðsti presturinn: „Er þessu svo farið?“ 2 Stefán svaraði: „Heyrið mig, bræður og feður. Guð dýrðarinnar birtist föður vorum, Abraham, er hann var enn í Mesópótamíu, áður [...]
Biblíulestur 4. október – Lúk 14.1-11
1 Hvíldardag nokkurn kom Jesús í hús eins af höfðingjum farísea til máltíðar og höfðu menn gætur á honum. 2 Þá var þar frammi fyrir honum maður einn vatnssjúkur. 3 [...]
Biblíulestur 3. október – Slm 104.1-18
1Lofa þú Drottin, sála mín. Drottinn, Guð minn, þú ert harla mikill. Þú ert skrýddur dýrð og hátign, 2sveipaður ljósi sem skikkju. Þú þenur út himininn eins og tjalddúk, 3reftir [...]