20 Um þessar mundir fæddist Móse og var forkunnarfríður. Þrjá mánuði var hann fóstraður í húsi föður síns. 21 En er hann var út borinn tók dóttir faraós hann og fóstraði sem sinn son. 22 Móse var fræddur í allri speki Egypta og hann var máttugur í orðum sínum og verkum.
23 Þegar hann var fertugur að aldri kom honum í hug að vitja ættmenna sinna, Ísraelsmanna. 24 Hann sá einn þeirra verða fyrir ójöfnuði og rétti hlut hans, hefndi þess sem meingjörðina þoldi og drap Egyptann. 25 Hann hugði að bræður hans mundu skilja að Guð ætlaði að nota hann til að bjarga þeim en þeir skildu það ekki. 26 Næsta dag kom hann þar að sem tveir þeirra slógust. Hann reyndi að stilla til friðar með þeim og sagði: Góðir menn, þið eruð bræður, hví eigist þið illt við? 27 En sá sem beitti náunga sinn órétti hratt honum frá sér og sagði: Hver skipaði þig höfðingja og dómara yfir okkur? 28 Þú ætlar þó ekki að drepa mig eins og þú drapst Egyptann í gær? 29 Við þessi orð flýði Móse og settist að sem útlendingur í Midíanslandi. Þar gat hann tvo sonu.
30 Að fjörutíu árum liðnum birtist honum engill í eyðimörk Sínaífjalls í logandi þyrnirunna. 31 Móse undraðist sýnina, gekk nær og vildi hyggja að. Þá hljómaði rödd Drottins: 32 Ég er Guð forfeðra þinna, Guð Abrahams, Ísaks og Jakobs. En Móse skelfdist og þorði ekki að hyggja frekar að. 33 En Drottinn sagði við hann: Leys af þér skó þína því að staðurinn, sem þú stendur á, er heilög jörð. 34 Ég hef séð áþján fólks míns á Egyptalandi og heyrt andvörp þess og er ofan kominn að frelsa það. Kom nú. Ég sendi þig til Egyptalands.
35 Þennan Móse, sem Ísraelsmenn höfnuðu með því að segja: Hver skipaði þig höfðingja og dómara? hann sendi Guð sem höfðingja og lausnara með fulltingi engilsins er honum birtist í þyrnirunnanum. 36 Það var Móse sem leiddi þá út úr Egyptalandi og gerði undur og tákn á Egyptalandi, í Rauðahafinu og á eyðimörkinni í fjörutíu ár, 37þessi sami Móse sem sagði við Ísraelsmenn: Spámann eins og mig mun Guð láta koma fram úr hópi ættmenna ykkar.