Daglegur lestur2025-11-23T00:01:48+00:00

Biblíulestur – 10. október – 5Mós 22.28–23.9

Ef maður hittir óspjallaða stúlku sem ekki er föstnuð, tekur hana með valdi og leggst með henni og komið er að þeim skal maðurinn, sem lagðist með stúlkunni, greiða föður hennar fimmtíu sikla silfurs. Hún skal verða eiginkona hans sakir þess að hann spjallaði hana og honum skal ekki heimilt að skilja við hana alla ævi sína.
Enginn má kvænast stjúpu sinni því að hann má ekki fletta upp ábreiðu föður síns.
Engum sem sætt hefur eistnamari eða er hreðurskorinn skal hleypa inn í söfnuð Drottins. Engu afkvæmi blandaðs sambands má hleypa inn í söfnuð Drottins, ekki einu sinni afkomanda í tíunda lið skal heimilt að ganga í söfnuð Drottins. Enginn Ammóníti eða Móabíti má vera í söfnuði Drottins, ekki einu sinni niðja þeirra í tíunda lið skal heimilt að ganga í söfnuð Drottins vegna þess að þeir færðu ykkur hvorki vatn né brauð þegar þið voruð á leiðinni út úr Egyptalandi. Og það var Móab sem keypti Bíleam Beórsson frá Petór í Aram Naharaím til að bölva þér. En Drottinn, Guð þinn, vildi ekki hlýða á Bíleam heldur sneri Drottinn, Guð þinn, bölvuninni í blessun því að Drottinn, Guð þinn, elskar þig. Þú skalt aldrei nokkru sinni, svo lengi sem þú lifir, stuðla að velgengni þeirra og farsæld. Þú skalt ekki hafa andstyggð á Edómítum því að þeir eru bræður þínir. Þú skalt ekki hafa andstyggð á Egyptum því að þú varst aðkomumaður í landi þeirra. Afkomendur þeirra í þriðja lið mega vera í söfnuði Drottins.
Þegar þú átt í hernaði við fjandmenn þína skaltu varast allt hneykslanlegt.

Biblíulestur 2. október – Post 6.1-15

Nýir þjónar 1 Á þessum dögum, er lærisveinum fjölgaði, fóru grískumælandi menn að kvarta yfir því að hebreskir settu ekkjur þeirra hjá við daglega úthlutun. 2 Hinir tólf kölluðu þá [...]

Biblíulestur 1. október – Post 5.17-42

17 Þá hófst æðsti presturinn handa og saddúkeaflokkurinn sem fylgdi honum. Fullir ofstækis 18 létu þeir taka postulana höndum og varpa í fangelsið. 19 En engill Drottins opnaði um nóttina [...]

Biblíulestur 28. september – Post 4.1-22

1 Meðan þeir Pétur og Jóhannes voru að tala til fólksins komu að þeim prestarnir, varðforingi helgidómsins og saddúkearnir. 2 Þeir voru æfir yfir því að postularnir voru að kenna [...]

Fara efst