Biblíulestur – 12. október – Lúk 14.1–11
Hvíldardag nokkurn kom Jesús í hús eins af höfðingjum farísea til máltíðar og höfðu menn gætur á honum. Þá var þar frammi fyrir honum maður einn vatnssjúkur. Jesús tók þá til máls og sagði við lögvitringana og faríseana: „Er leyfilegt að lækna á hvíldardegi eða ekki?“
Þeir þögðu við. En hann tók á honum, læknaði hann og lét hann fara. Og Jesús mælti við þá: „Ef einhver ykkar á asna eða naut, sem fellur í brunn, mun hann ekki óðara draga það upp þótt hvíldardagur sé?“
Þeir gátu engu svarað þessu.
Jesús gaf því gætur hvernig boðsgestir völdu sér hefðarsætin, tók dæmi og sagði við þá: „Þegar einhver býður þér til brúðkaups, þá set þig ekki í hefðarsæti. Svo getur farið að manni þér fremri að virðingu sé boðið og sá komi er ykkur bauð og segi við þig: Þoka fyrir manni þessum. Þá verður þú með kinnroða að taka ysta sæti. Far þú heldur er þér er boðið og set þig í ysta sæti svo að sá sem bauð þér segi við þig þegar hann kemur: Vinur, flyt þig hærra upp! Mun þér þá virðing veitast frammi fyrir öllum er sitja til borðs með þér. Því að hver sem upp hefur sjálfan sig mun auðmýktur verða en sá sem lítillækkar sjálfan sig mun upp hafinn verða.“
Biblíulestur 14. október – Post 10.1-16
1 Maður nokkur var í Sesareu, Kornelíus að nafni, hundraðshöfðingi í ítölsku hersveitinni. 2 Hann var trúmaður og guðrækinn og heimafólk hans allt. Hann gaf Gyðingum miklar ölmusur og var [...]
Biblíulestur 13. október – Post 9.26-43
26 Þá er Sál kom til Jerúsalem reyndi hann að samlaga sig lærisveinunum en þeir hræddust hann allir og trúðu ekki að hann væri lærisveinn. 27 En Barnabas tók hann [...]
Biblíulestur 12. október – Post 9.1-25
Sál fer til Damaskus 1 Sál hélt enn áfram að æða um með líflátshótanir gegn lærisveinum Drottins. Nú fór hann á fund æðsta prestsins 2 og beiddist bréfa af honum [...]
Biblíulestur 11. október – Mark 12.28-34
28 Þá kom til Jesú fræðimaður einn. Hann hafði hlýtt á orðaskipti þeirra og fann að Jesús hafði svarað þeim vel. Hann spurði: „Hvert er æðst allra boðorða?“ 29 Jesús [...]
Biblíulestur 10. október – Slm 104.19-35
19Þú gerðir tunglið, sem ákvarðar tíðirnar, og sólina sem veit hvenær hún á að ganga til viðar. 20Þú sendir myrkrið, þá verður nótt og öll skógardýrin fara á stjá. 21Ljónin [...]
Biblíulestur 9. október – Post 8.14-40
14 Þegar postularnir í Jerúsalem heyrðu að íbúar Samaríu hefðu tekið við orði Guðs sendu þeir til þeirra þá Pétur og Jóhannes. 15 Þeir fóru norður þangað og báðu Guð [...]