26 Þá er Sál kom til Jerúsalem reyndi hann að samlaga sig lærisveinunum en þeir hræddust hann allir og trúðu ekki að hann væri lærisveinn. 27 En Barnabas tók hann að sér, fór með hann til postulanna og skýrði þeim frá hvernig hann hefði séð Drottin á veginum, hvað hann hefði sagt við hann og hversu einarðlega hann hefði talað í Jesú nafni í Damaskus. 28 Dvaldist Sál nú með þeim í Jerúsalem, gekk þar út og inn og talaði einarðlega í nafni Drottins. 29Hann talaði og háði kappræður við grískumælandi Gyðinga en þeir leituðust við að ráða hann af dögum. 30 Þegar söfnuðurinn[ varð þess var fóru menn með hann til Sesareu og sendu hann áfram til Tarsus.
31 Nú hafði kirkjan frið um alla Júdeu, Galíleu og Samaríu. Hún byggðist upp og lifði í guðsótta og óx við örvun og styrk heilags anda.

Pétur fer til Lýddu og Joppe

32 Svo bar við er Pétur var að ferðast um og vitja allra að hann kom og til hinna heilögu sem áttu heima í Lýddu. 33Þar fann hann mann nokkurn, Eneas að nafni, er í átta ár hafði legið rúmfastur. Hann var lami. 34 Pétur sagði við hann: „Eneas, Jesús Kristur læknar þig, statt upp og bú um þig.“ Jafnskjótt stóð hann upp. 35 Allir sem áttu heima í Lýddu og Saron sáu hann og sneru sér til Drottins.
36 Í Joppe var lærisveinn, kona að nafni Tabíþa, á grísku Dorkas.[ Hún var mjög góðgerðasöm og örlát við snauða. 37 En á þeim dögum tók hún sótt og andaðist. Var hún lauguð og lögð í loftstofu. 38 Nú er Lýdda í grennd við Joppe og höfðu lærisveinarnir heyrt að Pétur væri þar. Sendu þeir tvo menn til hans og báðu hann: „Kom án tafar til okkar.“ 39 Pétur brá við og fór með þeim. Þegar þangað kom fóru þeir með hann upp í loftstofuna og allar ekkjurnar komu til hans grátandi og sýndu honum kyrtla og yfirhafnir sem Dorkas hafði gert meðan hún var hjá þeim. 40 En Pétur lét alla fara út, féll á kné og baðst fyrir. Síðan sneri hann sér að líkinu og sagði: „Tabíþa, rís upp.“ En hún opnaði augun, sá Pétur og settist upp. 41 Og hann rétti henni höndina og reisti hana á fætur, kallaði síðan á hina heilögu og ekkjurnar og leiddi hana fram lifandi. 42 Þetta barst út um alla Joppe og margir tóku trú á Drottin. 43 Var Pétur um kyrrt í Joppe allmarga daga hjá Símoni nokkrum sútara.