Biblíulestur – 11. nóvember – 5Mós 28.30–44
Þú festir þér konu en annar leggst með henni. Þú reisir þér hús en býrð ekki í því. Þú plantar víngarð en nýtur ekki einu sinni fyrstu uppskerunnar. Nauti þínu verður slátrað fyrir augum þínum en þú færð ekki að neyta neins af því. Asna þínum verður stolið að þér ásjáandi og verður ekki skilað aftur. Sauðfé þitt verður afhent fjandmönnum en enginn hjálpar þér. Synir þínir og dætur verða seld í hendur annarri þjóð. Augu þín munu daprast af að mæna á eftir þeim allan daginn en þú færð ekkert að gert. Ávöxt akurlands þíns og allan afrakstur af striti þínu gleypir þjóð sem þú þekkir ekki. Þú verður einungis kúgaður og píndur ævinlega og þú munt ganga af vitinu sakir þess sem þú verður að horfa á með eigin augum.
Drottinn slær þig illkynjuðum kaunum á hnjám og lærum, ólæknandi sárum frá hvirfli til ilja. Drottinn leiðir þig og konunginn, sem þú tekur þér, til þjóðar sem hvorki þú né forfeður þínir hafa þekkt. Þar muntu þjóna öðrum guðum, stokkum og steinum. Þú munt vekja hroll og þú munt hafður að háði og spotti á meðal allra þeirra þjóða sem Drottinn leiðir þig til. Þú flytur mikið sáðkorn út á akurinn en uppskerð lítið eitt því að engisprettur éta það upp. Þú plantar víngarða og yrkir þá en færð hvorki vín til að drekka né til að geyma því að ormar átu þrúgurnar. Ólífutré vaxa um land þitt allt en þú smyrð þig ekki með olíu því að ólífur þínar detta af trjánum. Þú eignast syni og dætur en færð ekki að hafa þau hjá þér því að þau fara í útlegð. Skordýr leggja undir sig öll þín tré og ávöxt lands þíns. Aðkomumaðurinn, sem býr hjá þér, stígur hærra og hærra yfir þig en þú sjálfur niðurlægist meira og meira. Hann lánar þér en þú getur ekki lánað honum neitt. Hann verður höfuðið, þú halinn.
Biblíulestur 17. apríl – Slm 115.1-11
1Gef eigi oss, Drottinn, eigi oss heldur þínu nafni dýrðina sakir miskunnar þinnar og trúfesti. 2Hví skyldu þjóðirnar segja: „Hvar er Guð þeirra?“ 3Guð vor er á himni, allt sem [...]
Biblíulestur 16. apríl – Kól 1.11–23
11Hann styrki ykkur á allar lundir með dýrðarmætti sínum svo að þið fyllist þolgæði í hvívetna og umburðarlyndi og getið með gleði 12 þakkað[ föðurnum sem hefur gert ykkur fært [...]
Biblíulestur 15. apríl – Gal 4.1–11
Ekki þrælar heldur börn 1 Með öðrum orðum: Alla þá stund sem erfinginn er ófullveðja er enginn munur á honum og þræli þótt hann eigi allt. 2 Hann er undir [...]
Biblíulestur 14. apríl – 2Sam 7.8–17
8 Þess vegna skaltu nú segja við þjón minn, Davíð: Svo segir Drottinn allsherjar: Ég sótti þig í haglendið þar sem þú gættir fjár og gerði þig að höfðingja yfir [...]
Biblíulestur 13. apríl – 1Pét 4.12–19
Að taka þátt í píslum Krists 12 Þið elskuðu, látið ykkur ekki undra eldraunina, sem yfir ykkur er komin, eins og eitthvað áður óþekkt hendi ykkur. 13 Gleðjist heldur er [...]
Biblíulestur 12. apríl – Heb 5.11–6.8
5. kafli Gerist ekki sljó 11 Um þetta höfum við langt mál að tala og ykkur torskilið af því að athygli ykkar er orðin sljó. 12 Þó að þið tímans [...]