Biblíulestur – 10. nóvember – 5Mós 28.15–29
En ef þú hlýðir ekki Drottni, Guði þínum, með því að breyta eftir öllum boðum hans og lögum, sem ég set þér í dag, munu allar þessar bölvanir fram við þig koma og á þér hrína:
Bölvaður ert þú í borginni og bölvaður ert þú á akrinum.
Bölvuð er karfa þín og deigtrog.
Bölvaður er ávöxtur kviðar þíns og ávöxtur akurlands þíns, kálfar nauta þinna og lömb sauðfjár þíns.
Bölvaður ert þú þegar þú kemur heim og bölvaður ert þú þegar þú gengur út. Drottinn sendir yfir þig bölvun, upplausn og ógnun og yfir allt sem þú tekur þér fyrir hendur, yfir allt sem þú gerir. Svo verður uns þú hefur verið afmáður og skyndilega að engu gerður vegna illra verka þinna sem þú sveikst mig með. Drottinn lætur drepsótt loða við þig þar til hann hefur eytt þér úr landinu sem þú ert að fara inn í til þess að taka það til eignar. Drottinn slær þig með tæringu, hita, hitasótt og hitabruna, með þurrki, korndrepi og korngulnun. Þetta mun ásækja þig þar til þér hefur verið eytt. Himinninn yfir höfði þér verður að eir og jörðin undir fótum þér að járni. Drottinn breytir regni lands þíns í sand og ösku sem fellur yfir þig þar til þér hefur verið tortímt. Drottinn lætur fjandmenn þína sigra þig. Um einn veg heldur þú gegn þeim en um sjö vegu flýrð þú undan þeim. Þú munt vekja öllum konungsríkjum jarðar hroll. Hræ þín verða æti handa öllum fuglum himins og dýrum jarðar og enginn fælir þau burt. Drottinn slær þig egypskum kaunum, kýlum, kláða og útbrotum og enginn getur læknað þig. Drottinn slær þig vitfirringu, blindu og sturlun svo að þú þarft að þreifa þig áfram um hábjartan dag eins og blindur maður í myrkri og þér mun ekki farnast vel. Án afláts verður þú kúgaður og rændur og enginn hjálpar þér.
Biblíulestur 11. apríl – Mrk 16.9–14
9 Þegar Jesús var upp risinn árla hinn fyrsta dag vikunnar birtist hann fyrst Maríu Magdalenu en út af henni hafði hann rekið sjö illa anda. 10 Hún fór og [...]
Biblíulestur 10. apríl – Slm 114.1-8
1Þegar Ísrael fór út af Egyptalandi, Jakobs ætt frá þjóð sem mælti á framandi tungu, 2varð Júda helgidómur hans, Ísrael konungsríki hans. 3Hafið sá það og flýði, Jórdan hörfaði undan, [...]
Biblíulestur 9. apríl – 1Kor 3.1–9
Grundvöllurinn er Kristur 1 Ég gat ekki, systkin,[ talað við ykkur eins og við andlega menn heldur eins og við menn sem sjá ekki nema sjálfa sig, eins og við [...]
Biblíulestur 8. apríl – Post 28.23-31
23 Þeir tóku til dag við hann og komu þá mjög margir til hans þar sem hann dvaldi. Frá morgni til kvölds skýrði Páll og vitnaði fyrir þeim um Guðs [...]
Biblíulestur 7. apríl – Jóh 12.37–50
Vantrúin myrkur, trúin ljós 37 Þótt hann hefði gert svo mörg tákn í allra augsýn trúðu menn ekki á hann 38 svo að rættist orð Jesaja spámanns er hann mælti: [...]
Biblíulestur 6. apríl – Jes 6.8–13
8Þá heyrði ég rödd Drottins sem spurði: „Hvern skal ég senda? Hver vill reka erindi vort?“ Ég svaraði: „Hér er ég. Send þú mig.“ 9Hann sagði: „Far þú og seg [...]