Biblíulestur – 9. nóvember – Jóh 4.46–53
Nú kom Jesús aftur til Kana í Galíleu þar sem hann hafði gert vatn að víni. Í Kapernaúm var konungsmaður nokkur sem átti sjúkan son. Þegar hann frétti að Jesús væri kominn frá Júdeu til Galíleu fór hann til hans og bað hann að koma niður eftir og lækna son sinn. En hann var dauðvona. Þá sagði Jesús við hann: „Þið trúið ekki nema þið sjáið tákn og stórmerki.“
Konungsmaður bað hann: „Drottinn, kom þú áður en barnið mitt andast.“
Jesús svaraði: „Far þú, sonur þinn lifir.“
Maðurinn trúði því sem Jesús sagði við hann og fór af stað. En meðan hann var á leiðinni ofan eftir mættu honum þjónar hans og sögðu að sonur hans væri á lífi.
Hann spurði þá hvenær honum hefði farið að létta og þeir svöruðu: „Í gær upp úr hádegi fór hitinn úr honum.“ Þá sá faðirinn að það var á þeirri stundu þegar Jesús hafði sagt við hann: „Sonur þinn lifir.“ Og hann tók trú og allt hans heimafólk.
Biblíulestur Annar páskadagur – Lk 24.1-12
1 En í afturelding fyrsta dag vikunnar komu þær til grafarinnar með ilmsmyrslin sem þær höfðu búið. 2 Þær sáu þá að steininum hafði verið velt frá gröfinni 3 og [...]
Biblíulestur Páskadagur – Jóh 20.1-10
1 Fyrsta dag vikunnar kemur María Magdalena til grafarinnar svo snemma að enn var myrkur og sér steininn tekinn frá gröfinni. 2 Hún hleypur því og kemur til Símonar Péturs [...]
Biblíulestur 3. apríl – Slm 113.1-9
1Hallelúja. [ Lofið Drottin, þér þjónar hans, lofið nafn Drottins. 2Nafn Drottins sé blessað héðan í frá og að eilífu. 3Frá sólarupprás til sólarlags sé nafn Drottins vegsamað. 4Drottinn er [...]
Biblíulestur Föstudagurinn langi – Jóh 19.16-30
16 Þá seldi hann þeim hann í hendur og bauð að láta krossfesta hann. Hermennirnir tóku þá við Jesú. 17 Og hann bar kross sinn og fór út til staðar [...]
Biblíulestur Skírdagur – Matt 26.17-30
Búið til páskamáltíðar 17 Á fyrsta degi ósýrðu brauðanna komu lærisveinarnir til Jesú og sögðu: „Hvar vilt þú að við búum þér páskamáltíðina?“ 18 Hann mælti: „Farið til ákveðins manns [...]
Biblíulestur 31. mars – 1Kor 12.14–26
14 Því að líkaminn er ekki einn limur heldur margir. 15 Ef fóturinn segði: „Fyrst ég er ekki hönd heyri ég ekki líkamanum til,“ þá er hann ekki fyrir það [...]