Biblíulestur – 8. nóvember – Slm 107.33–43
Hann gerir fljótin að eyðimörk
og uppsprettur að þurrum lendum,
frjósamt land að saltsléttu
sakir illsku íbúanna.
Hann gerir eyðimörk að vatnstjörnum
og þurrlendið að uppsprettum,
lætur hungraða setjast þar að
og reisir þeim borg til að búa í.
Þeir sá í akra, planta víngarða
og uppskera ríkulega.
Hann blessar þá og þeir margfaldast
og ekki fækkar hann fénaði þeirra.
En þótt þeim fækki og þeir hnígi niður
undan kúgun, böli og harmi
eys hann smán yfir höfðingja,
lætur þá villast í veglausri auðn,
en hinn snauða hefur hann upp úr eymd sinni
og gerir ættirnar sem hjarðir.
Hinir réttvísu sjá það og gleðjast
og allt illt lokar munni sínum.
Hver sem er vitur gefi gætur að þessu
og menn taki eftir náðarverkum Drottins.
Biblíulestur 30. mars – 1Kor 1.26–31
26 Minnist þess, systkin,[ hvernig þið voruð þegar Guð kallaði ykkur: Mörg ykkar voru ekki vitur að manna dómi, ekki voldug eða ættstór. 27 En Guð hefur útvalið það sem [...]
Biblíulestur 29. mars – Róm 9.19–26
Guð sýnir hve ómælanleg dýrð hans er 19 Þú munt nú vilja segja við mig: „Hvað er hann þá að ásaka okkur framar? Hver fær staðið gegn vilja hans?“ 20Hver [...]
Biblíulestur Pálmasunnudagur – Jóh 12.1-16
Jesús smurður 1 Sex dögum fyrir páska kom Jesús til Betaníu þar sem Lasarus var, sá er hann vakti frá dauðum. 2 Þar var honum búinn kvöldverður og Marta gekk [...]
Biblíulestur 27. mars – Okv 26.1-16
1Eins og snjór um sumar eða regn um uppskeru, svo illa á sæmd við heimskan mann. 2Eins og spörfugl hlýtur að flögra og svala að fljúga, eins er um óverðskuldaða [...]
Biblíulestur 26. mars – Róm 2.1–11
Réttlátur dómur Guðs 1 Því hefur þú, maður, sem dæmir, enga afsökun hver sem þú ert. Um leið og þú dæmir annan dæmir þú sjálfan þig því að þú, sem [...]
Biblíulestur 25. mars – Préd 4.1–6
Kúgun og böl 1 Enn sá ég alla þá kúgun sem viðgengst undir sólinni: Þar streyma tár hinna undirokuðu en enginn huggar þá. Af hendi kúgara sinna sæta þeir ofbeldi [...]