Guð sýnir hve ómælanleg dýrð hans er

19 Þú munt nú vilja segja við mig: „Hvað er hann þá að ásaka okkur framar? Hver fær staðið gegn vilja hans?“ 20Hver ert þú, maður, að þú skulir deila á Guð? Hvort fær smíðisgripurinn sagt við smið sinn: „Hví gerðir þú mig svona?“ 21 Eða hefur ekki leirkerasmiðurinn leirinn á valdi sínu svo að hann megi úr sama deigi gera viðhafnarker og annað til hversdagsnota?
22 Hafi Guð viljað sýna reiði sína og birta mátt sinn hefur hann samt af mikilli þolinmæði umborið þau ker sem vöktu reiði hans og áttu fyrir sér að fara forgörðum. 23 Hann ætlaði með því að sýna hve ómælanleg dýrð hans er við þá sem hann miskunnar[ og útvelur til dýrðar. 24 Þetta á við okkur,[ sem hann hefur kallað, ekki aðeins úr flokki Gyðinga heldur og úr flokki heiðingja. 25 Eins og hann líka segir hjá Hósea:
Lýð sem ekki var minn mun ég kalla minn
og þá sem ekki var elskuð mun ég mína elskuðu kalla.
26 Og á sama stað og sagt var við þá:
Þið eruð ekki minn lýður,
þar munu þeir kallaðir verða börn Guðs lifanda.