1 En í afturelding fyrsta dag vikunnar komu þær til grafarinnar með ilmsmyrslin sem þær höfðu búið. 2 Þær sáu þá að steininum hafði verið velt frá gröfinni 3 og þegar þær stigu inn fundu þær ekki líkama Drottins Jesú.[ 4 Þær skildu ekkert í þessu en þá brá svo við að hjá þeim stóðu tveir menn í leiftrandi klæðum. 5 Þær urðu mjög hræddar og hneigðu andlit til jarðar. En þeir sögðu við þær: „Hví leitið þér hins lifanda meðal dauðra? 6 Hann er ekki hér, hann er upp risinn.[ Minnist þess hvernig hann talaði við yður meðan hann var enn í Galíleu. 7 Hann sagði að Mannssonurinn skyldi framseldur verða í hendur syndugra manna og krossfestur en rísa upp á þriðja degi.“
8 Og þær minntust orða hans, 9 sneru frá gröfinni og kunngjörðu allt þetta þeim ellefu og öllum hinum. 10 Þessar konur voru þær María Magdalena, Jóhanna og María móðir Jakobs og hinar sem voru með þeim. Þær sögðu postulunum frá þessu. 11 En þeir töldu orð þeirra markleysu eina og trúðu þeim ekki. 12 Pétur stóð þó upp og hljóp til grafarinnar, skyggndist inn og sá þar líkklæðin ein. Fór hann heim síðan og undraðist það sem við hafði borið.[