Biblíulestur – 13. desember – Slm 109.21—31
En þú, Drottinn, Guð minn, breyt vel við mig sakir nafns þíns,
frelsa mig sakir gæsku þinnar og miskunnar
því að ég er hrjáður og snauður,
hjartað berst í brjósti mér.
Ég hverf sem skugginn er degi hallar,
ég er flæmdur burt eins og engispretta,
hné mín skjögra af föstu
og hold mitt skortir feiti.
Ég er orðinn mönnum að spotti,
þeir hrista höfuðið þegar þeir sjá mig.
Hjálpa mér, Drottinn, Guð minn,
bjarga mér eftir miskunn þinni,
að þeir megi komast að raun um að það var þín hönd,
að það varst þú, Drottinn, sem gerðir það.
Bölvi þeir, blessar þú,
rísi þeir gegn mér verði þeir til skammar
en þjónn þinn gleðjist.
Andstæðingar mínir íklæðist svívirðing,
sveipi sig skömminni eins og skikkju.
Ég vil lofa Drottin með munni mínum,
í fjölmenni vegsama ég hann
því að hann stendur við hlið hins snauða
til að hjálpa honum gegn þeim sem sakfella hann.
Biblíulestur 5. nóvember – 3Mós 13.38–46
38 Þegar blettir myndast á hörundi karls eða konu, hvítir blettir, 39 skal prestur skoða þá. Staðfesti hann að daufir, hvítir blettir séu á hörundinu eru það góðkynja útbrot sem [...]
Biblíulestur 4. nóvember – 3Mós 13.1–8
Holdsveiki 1 Drottinn talaði við Móse og Aron og sagði: 2 „Þegar bólga, útbrot eða hvítur blettur myndast á hörundi einhvers og verður að holdsveikiskellu á húð hans skal leiða [...]
Biblíulestur 3. nóvember – 1Pét 1.3–12
Lifandi von 3 Lofaður sé Guð og faðir Drottins vors Jesú Krists sem eftir mikilli miskunn sinni hefur endurfætt oss til lifandi vonar fyrir upprisu Jesú Krists frá dauðum 4 [...]
Biblíulestur 2. nóvember – Gal 5.13–26
13 Bræður og systur,[ þið voruð kölluð til að vera frjáls. Misnotið ekki frelsið í þágu eigin girnda heldur þjónið hvert öðru í kærleika. 14 Allt lögmálið felst í þessu [...]
Biblíulestur 1. nóvember – Post 16.22–34
22Múgurinn réðst og gegn þeim og höfuðsmennirnir létu fletta þá klæðum og skipuðu að húðstrýkja þá. 23 Þegar þeir höfðu lostið þá mörg högg vörpuðu þeir þeim í fangelsi og [...]
Biblíulestur 31. október – Matt 5.21-26
Skjótur til sátta 21 Þér hafið heyrt að sagt var við forfeðurna: Þú skalt ekki morð fremja. Sá sem morð fremur skal svara til saka fyrir dómi. 22 En ég [...]