Biblíulestur – 29. júní – Lúk 14.16–24
Jesús sagði við hann: „Maður nokkur gerði mikla kvöldmáltíð og bauð mörgum. Er stundin kom að veislan skyldi vera sendi hann þjón sinn að segja þeim er boðnir voru: Komið, nú er allt tilbúið. En þeir tóku allir að afsaka sig einum munni. Hinn fyrsti sagði við hann: Ég hef keypt akur og verð að fara og líta á hann. Ég bið þig, haf mig afsakaðan. Annar sagði: Ég hef keypt fimm tvenndir akneyta og er á förum að reyna þau. Ég bið þig, haf mig afsakaðan. Og enn annar sagði: Konu hef ég eignast, ekki get ég komið.
Þjónninn kom og tjáði herra sínum þetta. Þá reiddist húsbóndinn og sagði við þjón sinn: Far þú fljótt út á stræti og götur borgarinnar og leið inn hingað fátæka, örkumla, blinda og halta. Og þjónninn sagði: Herra, það er gert sem þú bauðst og enn er rúm. Þá sagði húsbóndinn við þjóninn: Far þú út um stíga og vegi og þrýstu á menn að koma inn svo að hús mitt fyllist. Því ég segi ykkur að enginn þeirra sem fyrst voru boðnir mun smakka kvöldmáltíð mína.“
Biblíulestur 27. maí – Dóm 13.8–18
8 Þá bað Manóa Drottin og sagði: „Æ, herra, láttu guðsmanninn, sem þú sendir, koma til okkar aftur svo að hann geti kennt okkur hvernig við eigum að fara með [...]
Biblíulestur 26. maí – Dóm 13.1–7
Fæðing Samsonar 1 Ísraelsmenn gerðu enn að nýju það sem illt var í augum Drottins. Þá gaf Drottinn þá í hendur Filisteum í fjörutíu ár. 2 Maður er nefndur Manóa. [...]
Biblíulestur 25. maí – Jóh 6.51–58
51 Ég er hið lifandi brauð sem steig niður af himni. Hver sem etur af þessu brauði mun lifa að eilífu. Og brauðið er líkami minn sem ég gef heiminum [...]
Biblíulestur Annar í hvítasunnu – Jóh 4.19-26
19 Konan segir við hann: „Drottinn, nú sé ég að þú ert spámaður. 20 Feður okkar hafa tilbeðið Guð á þessu fjalli en þið segið að í Jerúsalem sé sá [...]
Biblíulestur Hvítasunnudagur – Jóh 14.23-31a
23 Jesús svaraði: „Sá sem elskar mig varðveitir mitt orð og faðir minn mun elska hann. Til hans munum við koma og gera okkur bústað hjá honum. 24 Sá sem [...]
Biblíulestur 22. maí – Slm 118.1-14
1Þakkið Drottni því að hann er góður, því að miskunn hans varir að eilífu. 2Það mæli Ísrael því að miskunn hans varir að eilífu. 3Það mæli Arons ætt því að [...]