Biblíulestur – 15. desember – Ef 3.1–13
Þess vegna er það að ég, Páll, bandingi Krists Jesú vegna ykkar, heiðinna manna, beygi kné mín. Víst hafið þið heyrt um þá náð sem Guð hefur sýnt mér og um það hlutverk sem hann hefur falið mér hjá ykkur: Með opinberun birtist mér leyndardómurinn. Um það hef ég stuttlega skrifað áður. Þegar þið lesið það getið þið skynjað hvað ég veit um leyndardóm Krists. Hann var ekki birtur mannanna börnum fyrr á tímum. Nú hefur Guð látið andann opinbera hann heilögum postulum sínum og spámönnum: Vegna samfélagsins við Krist Jesú og með því að hlýða á fagnaðarerindið eru heiðingjarnir orðnir erfingjar með okkur, einn líkami með okkur, og eiga hlut í sama fyrirheiti og við.
Ég varð þjónn þessa fagnaðarerindis af því að Guð gaf mér þá náð með krafti máttar síns. Mér, sem minnstur er allra heilagra, var veitt sú náð að boða heiðingjum fagnaðarerindið um hinn órannsakanlega ríkdóm Krists og að upplýsa alla um það hvernig Guð hefur ráðstafað þessum leyndardómi sem frá eilífð var hulinn hjá Guði sem allt hefur skapað.
Nú skyldi kirkjan látin kunngjöra tignunum og völdunum á himnum hve margháttuð speki Guðs er. Þetta er Guðs eilífa fyrirætlun sem hann hefur framkvæmt í Kristi Jesú, Drottni vorum. Á honum byggist djörfung okkar. Í trúnni á hann eigum við öruggan aðgang að Guði. Fyrir því bið ég að þið látið eigi hugfallast út af þrengingum mínum ykkar vegna. Þær eru ykkur til vegsemdar.
Biblíulestur 17. nóvember – Heb 13.1–8
Lofgjörðarfórn fyrir Guð 1 Bróðurkærleikurinn haldist. 2 Gleymið ekki gestrisninni því að vegna hennar hafa sumir hýst engla án þess að vita. 3 Minnist bandingjanna sem væruð þið sambandingjar þeirra. [...]
Biblíulestur 16. nóvember – 1Tím 6.1–10
1 Allir þeir sem eru ánauðugir skulu sýna húsbændum sínum allan skyldugan heiður til þess að nafni Guðs og kenningunni verði ekki lastmælt. 2 En þeir sem eiga trúaða húsbændur [...]
Biblíulestur 15. nóvember – Fil 4.4–9
4 Verið ávallt glöð í Drottni. Ég segi aftur: Verið glöð. 5 Ljúflyndi ykkar verði kunnugt öllum mönnum. Drottinn er í nánd. 6 Verið ekki hugsjúk um neitt heldur gerið [...]
Biblíulestur 14. nóvember – Lúk 12.1–7
Varað við hræsni 1 Fólk hafði nú flykkst að í tugum þúsunda svo að nærri tróð hver annan undir. Jesús tók þá að tala, fyrst til lærisveina sinna: „Varist súrdeig [...]
Biblíulestur 13. nóvember – Slm 128
1 Helgigönguljóð. Sæll er hver sá er óttast Drottin og gengur á hans vegum. 2Afla handa þinna skalt þú njóta, sæll ert þú, vel farnast þér. 3Kona þín er sem [...]
Biblíulestur 12. nóvember – 1Kon 10.1–13
Drottningin af Saba 1 Drottningin af Saba heyrði það orð sem fór af Salómon og kom til þess að reyna hann með gátum. 2 Hún kom til Jerúsalem ásamt miklu [...]