Biblíulestur – 16. desember – Ef 3.14–4.6
Þess vegna beygi ég kné mín fyrir föðurnum, sem hvert faðerni fær nafn af á himni og jörðu, að hann gefi ykkur af ríkdómi dýrðar sinnar að styrkjast fyrir anda sinn að krafti hið innra með ykkur til þess að Kristur megi fyrir trúna búa í hjörtum ykkar og þið verða rótfest og grundvölluð í kærleika. Mættuð þið því geta skilið það með öllum heilögum hvílík er víddin og lengdin, hæðin og dýptin í kærleika Krists og fá að sannreyna hann, sem gnæfir yfir alla þekkingu, og ná að fyllast allri Guðs fyllingu.
En honum, sem í oss verkar með krafti sínum og megnar að gera langt fram yfir allt það sem vér biðjum eða skynjum, honum sé dýrð í kirkjunni og í Kristi Jesú með öllum kynslóðum um aldir alda. Amen.
Ég, bandinginn vegna Drottins, áminni ykkur þess vegna um að hegða ykkur svo sem samboðið er þeirri köllun sem þið hafið hlotið. Verið í hvívetna lítillát og hógvær. Verið þolinmóð, langlynd, umberið og elskið hvert annað. Kappkostið að varðveita einingu andans í bandi friðarins. Einn er líkaminn og einn andinn eins og Guð gaf ykkur líka eina von þegar hann kallaði ykkur. Einn er Drottinn, ein trú, ein skírn, einn Guð og faðir allra, sem er yfir öllum, með öllum og í öllum.
Biblíulestur 23. nóvember – 2Kon 4.25–37
25 Hún lagði af stað og kom til guðsmannsins á Karmelfjalli. Þegar guðsmaðurinn sá hana álengdar sagði hann við Gehasí, þjón sinn: „Þarna kemur konan frá Súnem. 26 Hlauptu nú [...]
Biblíulestur 22. nóvember – 2Kon 4.8–24
Elísa og ríka konan í Súnem 8 Dag nokkurn átti Elísa leið um Súnemborg. Þar bjó auðug kona sem bauð honum að þiggja mat hjá sér. Upp frá því mataðist [...]
Biblíulestur 21. nóvember – Matt 22.23–33
Guð lifenda 23 Sama dag komu saddúkear til Jesú, en þeir neita því að upprisa sé til, og sögðu við hann: 24 „Meistari, Móse segir: Deyi maður barnlaus þá skal [...]
Biblíulestur 20. nóvember – Slm 129
1 Helgigönguljóð. Menn sóttu mjög að mér allt frá æsku minni, – skal Ísrael segja – 2menn sóttu mjög að mér allt frá æsku minni en yfirbuguðu mig eigi. 3Þeir [...]
Biblíulestur 19. nóvember – 1Kon 17.7–24
7 Nokkru síðar þornaði lækurinn upp því að ekki hafði komið skúr á jörð. Elía og ekkjan í Sarefta 8 Þá kom orð Drottins til Elía: 9 „Búðu þig og [...]
Biblíulestur 18. nóvember – Jak 4.1–10
Auðmjúkum veitist náð 1 Af hverju koma stríð og af hverju sennur meðal ykkar? Af hverju öðru en girndum ykkar sem heyja stríð í limum ykkar? 2 Þið girnist og [...]