Biblíulestur – 17. desember – Ef 4.7–16
Sérhvert okkar þáði af Kristi sína náðargjöf. Því segir ritningin: „Hann steig upp til hæða, hertók fanga og gaf mönnunum gjafir.“ En „steig upp“, hvað merkir það annað en að hann hefur einnig stigið niður í undirdjúp jarðarinnar? Sá sem steig niður er og sá sem upp sté, upp yfir alla himna til þess að fullna allt. Og frá honum er sú gjöf komin að sumir eru postular, sumir spámenn, sumir trúboðar, sumir hirðar og kennarar. Þeir eiga að fullkomna hin heilögu og láta þeim þjónustu í té, líkama Krists til uppbyggingar, þangað til við verðum öll einhuga í trúnni og þekkingunni á syni Guðs, verðum fullþroska og náum vaxtartakmarki Krists fyllingar. Við eigum ekki að halda áfram að vera börn sem hrekjast og berast fram og aftur af hverjum kenningarvindi og tæld af slægum mönnum með vélabrögðum villunnar. Við eigum heldur að ástunda sannleikann í kærleika og vaxa í öllu upp til hans sem er höfuðið, Kristur. Hann tengir líkamann saman og heldur honum saman með því að láta sérhverja taug inna sína þjónustu af hendi, allt eftir þeim krafti sem hann úthlutar hverri þeirra. Þannig lætur hann líkamann vaxa og byggjast upp í kærleika.
Biblíulestur 29. nóvember – 2Mós 31.13–18
13 Þið skuluð halda hvíldardaga mína því að hvíldardagurinn er tákn milli mín og ykkar frá kyni til kyns svo að þið játið að ég er Drottinn sá sem helgar [...]
Biblíulestur 1. sun í aðventu – Matt 21.1-9
1 Þegar þeir nálguðust Jerúsalem og komu til Betfage við Olíufjallið sendi Jesús tvo lærisveina 2 og sagði við þá: „Farið í þorpið hér fram undan ykkur og jafnskjótt munuð [...]
Biblíulestur 27. nóvember – Okv 30.1-16
1 Orð Agúrs Jakesonar frá Massa, orð mannsins við Ítíel, Ítíel og Úkal: 2Ég er heimskari en svo að geta talist maður, ég hef ekki mannsvit, 3ég hef ekki lært [...]
Biblíulestur 26. nóvember – Opb 21.9–21
Ný Jerúsalem 9 Nú kom einn af englunum sjö, sem héldu á skálunum sjö, sem fullar voru af síðustu plágunum sjö, og talaði við mig og sagði: „Kom hingað og [...]
Biblíulestur 25. nóvember – 1Kor 15.42–58
42 Þannig er og um upprisu dauðra. Sáð er forgengilegu en upp rís óforgengilegt. 43 Sáð er í vansæmd en upp rís í vegsemd. Sáð er í veikleika en upp [...]
Biblíulestur 24. nóvember – 1Kor 15.29–41
29 Til hvers eru menn annars að láta skírast fyrir hina dánu? Ef dauðir rísa alls ekki upp, hvers vegna láta menn þá skíra sig fyrir þá? 30 Hví skyldi [...]