1 Þegar þeir nálguðust Jerúsalem og komu til Betfage við Olíufjallið sendi Jesús tvo lærisveina 2 og sagði við þá: „Farið í þorpið hér fram undan ykkur og jafnskjótt munuð þið finna ösnu bundna og fola hjá henni. Leysið þau og færið mér. 3 Ef einhver hefur orð um, þá svarið: Drottinn[ þarf þeirra við, og mun hann jafnskjótt senda þau.“
4 Þetta varð svo að rættist það sem spámaðurinn sagði fyrir um:
5Segið dótturinni Síon:
Konungur þinn kemur til þín,
hógvær er hann og ríður asna,
fola undan áburðargrip.

6 Lærisveinarnir fóru og gerðu sem Jesús hafði boðið þeim, 7 komu með ösnuna og folann og lögðu á þau klæði sín en Jesús steig á bak. 8 Fjöldamargir breiddu klæði sín á veginn en aðrir hjuggu greinar af trjánum og lögðu á veginn. 9 Og múgur sá sem á undan fór og eftir fylgdi hrópaði: „Hósanna syni Davíðs! Blessaður sé sá sem kemur í nafni Drottins! Hósanna í hæstum hæðum!“