Biblíulestur – 12. desember – Ef 2.11–22
Þið skuluð því minnast þessa: Þið voruð upprunalega heiðingjar og kallaðir óumskornir af mönnum sem kalla sig umskorna og eru umskornir á holdi með höndum manna. Sú var tíðin er þið voruð án Krists, lokaðir úti frá þegnrétti Ísraelsmanna. Þið stóðuð fyrir utan sáttmálana og fyrirheit Guðs, vonlausir og guðvana í heiminum. Nú þar á móti eruð þið, sem eitt sinn voruð fjarlægir, nálægir orðnir í Kristi fyrir blóð hans. Því að hann er friður okkar. Hann gerði heiðingja og Ísraelsmenn að einum, hann reif niður vegginn sem skildi þá að, fjandskapinn milli þeirra. Með lífi sínu og dauða afmáði hann lögmálið með boðorðum þess og skipunum til þess að setja frið og skapa í sér einn nýjan mann úr báðum. Í einum líkama sætti hann þá báða við Guð með því að deyja á krossi þar sem hann deyddi fjandskapinn. Og hann kom og boðaði ykkur frið sem fjarlægir voruð, og frið hinum sem nálægir voru. Því að fyrir hans tilverknað getum við hvor tveggja nálgast föðurinn í einum anda.
Þess vegna eruð þið ekki framar gestir og útlendingar heldur eruð þið samþegnar hinna heilögu og heimamenn Guðs. Þið eruð bygging sem hefur að grundvelli postulana og spámennina en Krist Jesú sjálfan að hyrningarsteini. Í honum tengist öll sú bygging saman, vex og verður heilagt musteri í Drottni. Með honum eruð einnig þið sambyggðir til andlegs bústaðar handa Guði.
Biblíulestur 30. október – Okv 29.14-27
14Dæmi konungur hina lágt settu af réttvísi mun hásæti hans standa stöðugt að eilífu. 15Vöndur og umvöndun veita speki en agalaus sveinn gerir móður sinni skömm. 16Þegar ranglátum fjölgar, fjölgar [...]
Biblíulestur 29. október – 2Kon 17.24–41
Ísraelsmenn herleiddir 24 Assýríukonungur flutti fólk frá Babýlon, Kúta, Ava, Hamat og Sefarvaím til landsins[ og lét það setjast að í borgum Samaríu í stað Ísraelsmanna. Þessar þjóðir tóku Samaríuhérað[ [...]
Biblíulestur 28. október – Jós 22.1–6
1 Þá kvaddi Jósúa til sín niðja Rúbens og Gaðs og hálfan ættbálk Manasse 2 og sagði við þá: „Þið hafið fylgt öllu, sem Móse, þjónn Drottins, lagði fyrir ykkur. [...]
Biblíulestur 27. október – 3Mós 19.11–18
11 Þið megið hvorki stela né svíkja og ekki hlekkja hver annan. 12 Þið skuluð ekki sverja meinsæri við nafn mitt svo að þú vanhelgir ekki nafn mitt. Ég er [...]
Biblíulestur 26. október – Post 9.1–19
Sál fer til Damaskus 1 Sál hélt enn áfram að æða um með líflátshótanir gegn lærisveinum Drottins. Nú fór hann á fund æðsta prestsins 2 og beiddist bréfa af honum [...]
Biblíulestur 25. október – Jes 42.18–43.1
42. kafli Blind og heyrnarlaus þjóð 18Hlustið, þér heyrnarlausir, lítið upp, blindir, svo að þér sjáið. 19Hver er blindur ef ekki þjónn minn og heyrnarlaus ef ekki sendiboði minn? Hver [...]