Biblíulestur – 20. desember – Slm 110.1–7
Davíðssálmur.
Svo segir Drottinn við herra minn:
„Set þig mér til hægri handar,
þá mun ég leggja óvini þína
sem skör fóta þinna.“
Drottinn réttir út þinn volduga sprota frá Síon.
Drottna þú meðal óvina þinna.
Þjóð þín kemur fúslega er þú kveður til her þinn.
Á helgum fjöllum fæddi ég þig
eins og dögg úr skauti morgunroðans.
Drottinn hefur svarið
og hann iðrar þess eigi:
„Þú ert prestur að eilífu
að hætti Melkísedeks.“
Drottinn er þér til hægri handar,
hann knosar konunga á degi reiði sinnar.
Hann heldur dóm meðal þjóðanna,
fyllir allt líkum,
knosar höfðingja um víðan vang.
Á leiðinni drekkur hann úr læknum,
þess vegna ber hann höfuðið hátt.
Biblíulestur 17. desember – Kól 3.12–17
12 Íklæðist því eins og Guðs útvalin, heilög og elskuð börn hjartagróinni meðaumkun, góðvild, auðmýkt, hógværð og langlyndi. 13 Umberið hvert annað og fyrirgefið hvert öðru ef einhver hefur sök [...]
Biblíulestur 16. desember – Mík 7.11–20
11Sá dagur kemur að múrar þínir verða endurreistir og þann dag mun land þitt stækka að mun. 12Þann dag munu menn snúa aftur til þín, koma allt frá Assýríu til [...]
Biblíulestur 15. desember – 3Mós 16.23–34
Þegar maðurinn hefur rekið geithafurinn út í eyðimörkina 23 skal Aron ganga aftur inn í samfundatjaldið, fara úr línklæðunum, sem hann fór í þegar hann gekk inn í helgidóminn, og [...]
Biblíulestur 14. desember – 3Mós 16.11–22
11 Aron skal færa fram sinn eigin nautkálf sem ætlaður er til syndafórnar og friðþægja fyrir sjálfan sig og ætt sína. 12 Hann skal taka glóðarker fullt af glóandi kolum [...]
Biblíulestur 13. desember – 3Mós 16.1–10
Friðþægingardagurinn 1 Drottinn talaði við Móse eftir að tveir synir Arons létust þegar þeir gengu fram fyrir Drottin. 2 Drottinn sagði við Móse: „Ávarpaðu Aron, bróður þinn, og segðu að [...]
Biblíulestur 3. sun í aðventu – Lk 24.44-53
1 Á fimmtánda stjórnarári Tíberíusar keisara, þegar Pontíus Pílatus var landstjóri í Júdeu en Heródes fjórðungsstjóri í Galíleu, Filippus, bróðir hans, í Ítúreu og Trakónítishéraði og Lýsanías í Abílene, 2 [...]