Biblíulestur – 19. desember – Ef 5.1–20
Verðið því eftirbreytendur Guðs svo sem elskuð börn hans. Lifið í kærleika eins og Kristur elskaði okkur og lagði sjálfan sig í sölurnar fyrir okkur svo sem fórnargjöf, Guði til þægilegs ilms.
En frillulífi og óhreinleiki yfirleitt eða ágirnd á ekki einu sinni að nefnast á nafn meðal ykkar. Slíkt hæfir ekki heilögum. Ekki heldur svívirðilegt hjal eða ósæmandi spé. Þakkið miklu fremur Guði. Því að það skuluð þið vita og festa ykkur í minni að enginn frillulífismaður eða saurugur eða ágjarn – sem er sama og að dýrka hjáguði – á sér arfsvon í ríki Krists og Guðs.
Látið engan tæla ykkur með marklausum orðum því að vegna þessa kemur reiði Guðs yfir þá sem hlýða honum ekki. Verðið þess vegna ekki lagsmenn þeirra. Eitt sinn voruð þið myrkur en nú eruð þið ljós í Drottni. Hegðið ykkur því eins og börn ljóssins. – Því að ávöxtur ljóssins er einskær góðvild, réttlæti og sannleikur. – Metið rétt hvað Drottni þóknast. Eigið engan hlut í verkum myrkursins, sem ekkert gott hlýst af, heldur flettið miklu fremur ofan af þeim. Því að það sem slíkir menn fremja í leyndum er jafnvel svívirðilegt um að tala. En allt það sem ljósið afhjúpar verður augljóst. Því að allt sem er augljóst er í ljósi.
Því segir svo:
Vakna þú sem sefur
og rís upp frá dauðum
og þá mun Kristur lýsa þér.
Hafið því nákvæma gát á hvernig þið breytið, ekki sem fávís heldur sem vís. Notið hverja stund því að dagarnir eru vondir. Verið því ekki óskynsöm heldur reynið að skilja hver sé vilji Drottins. Drekkið ykkur ekki drukkin af víni, það leiðir aðeins til spillingar. Fyllist heldur andanum og ávarpið hvert annað með sálmum, lofsöngvum og andlegum ljóðum. Syngið og lofið Drottin af öllu hjarta og þakkið jafnan Guði, föðurnum, fyrir alla hluti í nafni Drottins vors Jesú Krists.
Biblíulestur 11. desember – Slm 132
1 Helgigönguljóð. Minnstu Davíðs, Drottinn, og allra þrauta hans, 2hans sem sór Drottni eið, hét Hinum volduga Jakobs: 3„Ég vil eigi ganga inn í tjaldhús mitt, ekki stíga upp í [...]
Biblíulestur 10. desember – 2Jóh 1–13
Kveðja 1 Öldungurinn heilsar hinni útvöldu frú og börnum hennar sem ég elska sannarlega. Og ekki ég einn heldur einnig allir sem þekkja sannleikann. 2 Við gerum það sakir sannleikans [...]
Biblíulestur 9. desember – 1Kor 13.1–13
Kærleikurinn mestur 1Þótt ég talaði tungum manna og engla en hefði ekki kærleika væri ég hljómandi málmur eða hvellandi bjalla. 2Og þótt ég hefði spádómsgáfu og vissi alla leyndardóma og [...]
Biblíulestur 8. desember – Róm 13.8–14
Kærleikurinn uppfylling lögmálsins 8 Skuldið ekki neinum neitt nema það eitt að elska hvert annað því að sá sem elskar náunga sinn hefur uppfyllt lögmálið. 9 Boðorðin: „Þú skalt ekki [...]
Biblíulestur 7. desember – 5Mós 30.11–20
11Þetta boð, sem ég legg fyrir þig í dag, er ekki óskiljanlegt eða fjarlægt þér. 12 Það er ekki uppi í himninum svo að þú þurfir að spyrja: „Hver vill [...]
Biblíulestur 6. desember – 5Mós 30.1–10
Heimför heitið 1 Þegar allt þetta, blessunin og bölvunin sem ég hef lagt fyrir þig í dag, er yfir þig komið og þú minnist þeirra orða á meðal allra þeirra [...]