Kveðja

1 Öldungurinn heilsar hinni útvöldu frú og börnum hennar sem ég elska sannarlega. Og ekki ég einn heldur einnig allir sem þekkja sannleikann. 2 Við gerum það sakir sannleikans sem í okkur er og mun vera hjá okkur til eilífðar. 3Náð, miskunn og friður frá Guði föður og frá Jesú Kristi, syni föðurins, mun vera með okkur í sannleika og kærleika.

Elska og sannleikur

4 Það hefur glatt mig mjög að ég hef fundið nokkur barna þinna sem lifa í sannleikanum eins og faðirinn bauð okkur. 5 Og nú bið ég þig, frú mín góð, og er þá ekki að skrifa þér nýtt boðorð, heldur það er við höfðum frá upphafi: Við skulum elska hvert annað. 6 Kærleikurinn felst í að við lifum eftir boðorðum hans. Þetta er boðorðið, eins og þið heyrðuð það frá upphafi til þess að þið skylduð breyta samkvæmt því.
7 Því að margir afvegaleiðendur eru farnir út í heiminn sem ekki játa að Jesús sé Kristur, kominn sem maður. Þetta er afvegaleiðandinn og andkristurinn. 8 Hafið gætur á sjálfum ykkur að þið missið ekki það sem við höfum[ áunnið heldur megið fá full laun. 9 Sérhver sem fer sínu fram og er ekki staðfastur í kenningu Krists á ekki Guð. Hinn sem er staðfastur í kenningunni á bæði föðurinn og soninn. 10 Ef einhver kemur til ykkar og boðar aðra kenningu, þá takið hann ekki á heimili ykkar og bjóðið hann ekki velkominn. 11 Því að sá sem býður hann velkominn tekur þátt í hans vondu verkum.
12 Þótt ég hafi margt að rita ykkur vildi ég ekki gera það með pappír og bleki heldur vona að koma til ykkar og sjá ykkur og tala við ykkur til þess að gleði okkar verði fullkomin. 13 Börn systur þinnar, hinnar útvöldu, biðja að heilsa þér.