Biblíulestur – Fjórði sunnudagur í aðventu 21. desember – Jóh 3.22–30
Eftir þetta fóru Jesús og lærisveinar hans út í Júdeuhérað. Þar dvaldist hann með þeim og skírði. Jóhannes var líka að skíra í Aínon nálægt Salím en þar var mikið vatn. Menn komu þangað og létu skírast. Þá var ekki enn búið að varpa Jóhannesi í fangelsi.
Nú varð deila um hreinsun milli lærisveina Jóhannesar og Gyðings eins. Þeir komu til Jóhannesar og sögðu við hann: „Rabbí, sá sem var hjá þér handan Jórdanar og þú barst vitni um, hann er að skíra og allir koma til hans.“
Jóhannes svaraði þeim: „Enginn getur tekið neitt nema Guð gefi honum það. Þið getið sjálfir vitnað um að ég sagði: Ég er ekki Kristur heldur er ég sendur á undan honum. Sá er brúðguminn sem á brúðina en vinur brúðgumans, sem stendur hjá og hlýðir á hann, gleðst mjög við rödd hans. Þessi gleði er nú mín að fullu. Hann á að vaxa en ég að minnka.“
Biblíulestur Þorláksmessa – Matt 24.42-47
42 Vakið því, þér vitið eigi hvaða dag Drottinn yðar kemur. 43 Það skiljið þér að húsráðandi vekti og léti ekki brjótast inn í hús sitt ef hann vissi á [...]
Biblíulestur 22. desember – Róm 9.22–33
22 Hafi Guð viljað sýna reiði sína og birta mátt sinn hefur hann samt af mikilli þolinmæði umborið þau ker sem vöktu reiði hans og áttu fyrir sér að fara [...]
Biblíulestur 21. desember – Hós 2.18–25
Nýr sáttmáli 18Á þeim degi munt þú, segir Drottinn, ávarpa mig „eiginmaður minn“, og ekki framar kalla til mín „Baal minn“. 19Ég fjarlægi nöfn Baala úr munni hennar og þeir [...]
Biblíulestur 20. desember – Heb 8.1–13
Æðsti prestur nýs sáttmála 1 Höfuðinntak þess sem sagt hefur verið er þetta: Við höfum þann æðsta prest er settist til hægri handar við hásæti hátignarinnar á himnum. 2 Hann [...]
Biblíulestur 4. sun í aðventu – Jóh 1.19-28
Jóhannes skírari vitnar 19 Þessi er vitnisburður Jóhannesar þegar ráðamenn[ í Jerúsalem sendu til hans presta og Levíta til að spyrja hann: „Hver ert þú?“ 20 Hann svaraði ótvírætt og [...]
Biblíulestur 18. desember – Slm 133 og Slm 134
Sálmur 133 1 Helgigönguljóð. Eftir Davíð. Sjá, hversu fagurt og yndislegt það er þegar bræður búa saman. 2Það líkist ágætri olíu á höfði sem drýpur niður í skeggið, skegg Arons, [...]