Daglegur lestur2025-11-23T00:01:48+00:00

Biblíulestur 18. janúar – Lúk 19.1–10

Jesús kom til Jeríkó og gekk gegnum borgina. En þar var maður er Sakkeus hét. Hann var yfirtollheimtumaður og auðugur. Langaði hann að sjá hver Jesús væri en tókst það ekki fyrir mannfjöldanum því að hann var lítill vexti. Hann hljóp þá á undan og klifraði upp í mórberjatré til að sjá Jesú, en leið hans lá þar hjá. Og er Jesús kom þar að leit hann upp og sagði við hann: „Sakkeus, flýt þér ofan, í dag ber mér að vera í húsi þínu.“
Hann flýtti sér ofan og tók á móti honum glaður. Þeir er sáu þetta létu allir illa við og sögðu: „Hann þiggur boð hjá bersyndugum manni.“
En Sakkeus sneri sér til Drottins og sagði við hann: „Drottinn, helming eigna minna gef ég fátækum og hafi ég haft nokkuð af nokkrum gef ég honum ferfalt aftur.“
Jesús sagði þá við hann: „Í dag hefur hjálpræði hlotnast húsi þessu enda ert þú líka niðji Abrahams. Því að Mannssonurinn er kominn að leita að hinu týnda og frelsa það.“

Biblíulestur 19. júní – Lúk 16.19–31

Jesús sagði þeim þessa dæmisögu: „Einu sinni var maður nokkur ríkur er klæddist purpura og dýru líni og lifði hvern dag í dýrlegum fagnaði. En fátækur maður, hlaðinn kaunum, lá [...]

Biblíulestur 18. júní – Slm 145.8–21

Náðugur og miskunnsamur er Drottinn, þolinmóður og mjög gæskuríkur. Drottinn er öllum góður og miskunn hans hvílir yfir allri sköpun hans. Öll verk þín lofa þig, Drottinn, og dýrkendur þínir [...]

Biblíulestur 16. júní – Sak 8.9–17

Svo segir Drottinn allsherjar: Herðið upp hugann, þið sem heyrið á þessum dögum orð af munni spámannanna sem uppi voru þegar grundvöllur var lagður að endurbyggingu musterisins, húss Drottins allsherjar. [...]

Biblíulestur 15. júní – Sak 8.1–8

Orð Drottins allsherjar kom til mín: Svo segir Drottinn allsherjar: Ég er gagntekinn af vandlæti vegna Síonar, ég loga af vandlæti hennar vegna. Svo segir Drottinn: Ég sný aftur til [...]

Biblíulestur 14. júní – Sak 7.1–14

Á fjórða degi hins níunda mánaðar, kislevmánaðar, á fjórða stjórnarári Daríusar konungs barst Sakaría orð Drottins. Þá sendu þeir Betel Sareser og Regem Melek og menn hans sendiboða til þess [...]

Fara efst