Daglegur lestur2025-11-23T00:01:48+00:00

Biblíulestur 17. janúar – Slm 113.1–9

Hallelúja.
Lofið Drottin, þér þjónar hans,
lofið nafn Drottins.
Nafn Drottins sé blessað
héðan í frá og að eilífu.
Frá sólarupprás til sólarlags
sé nafn Drottins vegsamað.
Drottinn er hafinn yfir allar þjóðir,
dýrð hans er himnum hærri.
Hver er sem Drottinn, Guð vor?
Hann situr hátt
og horfir djúpt.
Hver er sem hann á himni og á jörðu?
Hann reisir lítilmagnann úr duftinu,
lyftir snauðum úr svaðinu
og leiðir hann til sætis hjá tignarmönnum,
hjá höfðingjum þjóðar sinnar.
Hann fær óbyrjunni heimili
sem glaðri barnamóður.
Hallelúja.

Biblíulestur 10. júní – Sak 4.1–14

Engillinn, viðmælandi minn, vakti mig aftur, líkt og þegar menn eru vaktir af svefni, og spurði mig: „Hvað sérðu?“ Ég svaraði: „Ég sé ljósastiku úr skíragulli. Á henni er skál [...]

Biblíulestur 8. júní – Sak 2.1–17

Ég leit upp og sá fjögur horn. Og ég spurði engilinn, sem við mig talaði, og sagði: „Hvað er þetta?“ Hann svaraði: „Þetta eru hornin sem tvístruðu Júda, Ísrael og [...]

Fara efst