Biblíulestur 16. janúar – Esk 3.4–15
Síðan sagði hann við mig: „Mannssonur, farðu nú til Ísraelsmanna og flyttu þeim orð mín því að þú ert ekki sendur til fólks sem talar framandi eða óskiljanlegt tungumál, heldur til Ísraelsmanna, ekki til margra þjóða sem tala framandi tungumál sem þú skilur ekki orð í. Ef ég hefði sent þig til þeirra hefðu þær hlustað á þig. En Ísraelsmenn vilja ekki hlusta á þig af því að þeir vilja ekki hlusta á mig. Þar sem allir Ísraelsmenn hafa hart enni og forhert hjarta herði ég nú andlit þitt eins og andlit þeirra og enni þitt eins og enni þeirra. Ég hef gert enni þitt hart sem demant, harðara en kvars. Þú skalt hvorki óttast þá né skelfast þó að þeir séu þverúðugt fólk.“
Síðan sagði hann við mig: „Mannssonur, hlýddu með athygli á öll þau orð sem ég tala til þín og festu þau í huga þér. Haltu af stað, farðu til útlaganna, samlanda þinna, ávarpaðu þá og segðu: Svo segir Drottinn Guð, hvort sem þeir hlusta eða ekki.“
Þá hóf andinn mig upp. Ég heyrði drunur frá miklum jarðskjálfta að baki mér þegar dýrð Drottins hófst upp frá stað sínum, þytinn frá vængjum veranna sem snerust, hvin hjólanna við hlið þeirra og drunur frá miklum jarðskjálfta. Andinn hóf mig upp og bar mig með sér. Ég hélt af stað bitur og reiður því að hönd Drottins hvíldi þungt á mér. Ég kom til útlaganna í Tel Abíb, þeirra sem bjuggu við Kebarfljót. Ég sat á meðal þeirra í sjö daga, stjarfur af skelfingu.
Biblíulestur 7. júní – Sak 1.1–17
Í áttunda mánuði annars stjórnarárs Daríusar konungs barst orð Drottins Sakaría spámanni, syni Berekja Íddósonar: Drottinn var afar reiður forfeðrum ykkar. Segðu því við þá: Svo mælir Drottinn allsherjar: Snúið [...]
Biblíulestur Annar í hvítasunnu – Jóh 3.16–21
Því svo elskaði Guð heiminn að hann gaf einkason sinn til þess að hver sem á hann trúir glatist ekki heldur hafi eilíft líf. Guð sendi ekki soninn í heiminn [...]
Biblíulestur Hvítasunnudagur – Jóh 14.23–31a
Jesús svaraði: „Sá sem elskar mig varðveitir mitt orð og faðir minn mun elska hann. Til hans munum við koma og gera okkur bústað hjá honum. Sá sem elskar mig [...]
Biblíulestur 4. júní – Jóh 7.37–39
Síðasta daginn, hátíðardaginn mikla, stóð Jesús þar og kallaði: „Ef nokkurn þyrstir þá komi hann til mín og drekki. Frá hjarta þess sem trúir á mig munu renna lækir lifandi [...]
Biblíulestur 3. júní – Mal 3.16–24
Um þetta töluðu þeir hver við annan, sem óttuðust Drottin, og Drottinn hlýddi á með athygli. Frammi fyrir honum var skrifuð bók til að minna á alla sem óttast Drottin [...]
Biblíulestur 2. júní – Mal 3.6–15
Því að ég, Drottinn, er ekki breyttur og þið ekki hættir að vera synir Jakobs. Allt frá dögum forfeðra ykkar hafið þið vikið frá lögum mínum, þið hélduð þau ekki. [...]