Biblíulestur 15. janúar – Esk 2.1–3.3
Hann sagði við mig: „Mannssonur, stattu á fætur og ég mun tala við þig.“
Þegar hann talaði til mín kom andi í mig sem reisti mig á fætur og ég hlustaði á það sem hann sagði við mig. Hann sagði við mig: „Mannssonur, ég sendi þig til Ísraelsmanna sem eru uppreisnargjarnir og hafa risið gegn mér. Þeir og feður þeirra hafa brotið gegn mér allt til þessa dags. Ég sendi þig til barna sem eru hörð á svip og hafa forhert hjarta. Þú skalt segja við þau: Svo segir Drottinn Guð. Hvort sem þeir hlusta eða neita að hlusta, því að þeir eru þverúðugt fólk, skulu þeir játa að spámaður hefur verið á meðal þeirra. En þú, mannssonur, skalt ekki óttast þá né hræðast orð þeirra þó að þyrnar umlyki þig og þú sitjir á sporðdrekum. Þú skalt ekki óttast orð þeirra og ekki hræðast fyrir augliti þeirra því að þeir eru þverúðugir. Þú skalt flytja þeim orð mín hvort sem þeir hlusta á þau eða gefa þeim engan gaum því að þeir eru þverúðugir. En þú, mannssonur, hlýddu á það sem ég segi við þig. Vertu ekki þrjóskur eins og þetta þverúðuga fólk. Opnaðu munn þinn og et það sem ég fæ þér.“
Þegar ég leit upp sá ég hönd sem að mér var rétt og í henni var bók. Hann rakti hana sundur fyrir mér og á hana voru rituð, bæði á framhlið hennar og bakhlið, harmakvein, andvörp og kveinstafir.
Hann sagði við mig: „Mannssonur, et það sem að þér er rétt. Et þessa bók og farðu síðan og ávarpaðu Ísraelsmenn.“ Þá opnaði ég munninn og hann fékk mér bókina að eta og sagði við mig: „Mannssonur, et bók þessa og láttu hana fylla magann.“ Þá át ég hana og hún var sæt sem hunang í munni mér.
Biblíulestur 1. júní – Mal 2.17–3.5
Þið þreytið Drottin með orðum ykkar. Þið spyrjið: „Með hverju þreytum við hann?“ Með því að segja: „Sérhver illvirki er góður í augum Drottins, honum þykir vænt um slíka menn,“ [...]
Biblíulestur 31. maí – Mal 2.10–16
Eigum við ekki öll sama föður? Hefur einn og sami Guð ekki skapað okkur? Hvers vegna erum við þá svikul hvert við annað og vanhelgum sáttmála feðra okkar? Júda hefur [...]
Biblíulestur 30. maí – Mal 2.1–9
Prestar, takið þetta til ykkar: Ef þið hlustið ekki og látið ykkur ekki umhugað um að halda nafn mitt í heiðri, segir Drottinn hersveitanna, sendi ég bölvunina yfir ykkur og [...]
Biblíulestur 29. maí – Jóh 15.26–16.4
Þegar hjálparinn kemur, sem ég sendi yður frá föðurnum, sannleiksandinn, er út gengur frá föðurnum, mun hann vitna um mig. Þér skuluð einnig vitni bera því þér hafið verið með [...]
Biblíulestur 28. maí – Okv 10.1–12
Orðskviðir Salómons: Vitur sonur gleður föður sinn en heimskur sonur er móður sinni til mæðu. Rangfenginn auður stoðar ekki en réttlæti frelsar frá dauða. Drottinn lætur ekki réttlátan mann þola [...]
Biblíulestur 27. maí – Mal 1.6–14
Sonur heiðrar föður sinn og þjónn húsbónda sinn. Ef ég er faðir, hvar er þá virðingin sem mér ber? Ef ég er húsbóndi, hvar er þá lotningin sem mér ber? [...]